Becks

cracking bloke

sunnudagur, október 28, 2007

How do you like Iceland?

Þetta hefur Terry Jones, einn af meðlimum Monty Python hópsins, að segja um Reykjavík og Ísland.

þriðjudagur, október 23, 2007

Airwaves: 3. dagur

Trentemöller in concert
Gott, hart teknó. Frábær stemmning. Trentemöller sjálfur í DJ hlutverki með liðsinni a.m.k. tveggja manna, sem skiptust á að hoppa á trommur, bassa og gítar.

Plants and Animals
Hlupum yfir í Iðnó til að sjá þessa sveit. 3ja manna sveit. Svolítið í ætt við Grizzly Bear. Varð fyrir vonbrigðum.

Múm
Hafði aldrei áður séð Múm á tónleikum. Byrjuðu með látum og upphafslagið var mjög flott. Héldu ágætlega út spilatímann.

Of Montreal
Stóðust væntingar. Fór reyndar ekki vel af stað þegar í ljós kom að gítar Kevin Barnes var ótengdur einhverra hluta vegna. Ég var viss um að hann ætlaði að ganga af sviði þegar míkrófóninn datt í sundur þegar hann tók hann af míkrófónstandinum. Þetta lagaðist þó og sveitin fór í gegnum gott prógram þar sem hún tók helstu slagarana og eitt uppklappslag að auki.

Computerclub
Hlupum yfir á Lídó til að sjá þessa hljómsveit. Voru án trommuleikarans sem náði víst ekki til landsins í tæka tíð. Söngvarinn náði ekki góðu sambandi við salinn, var með hettu og sólgleraugu og hálffeiminn bara.

---

Vegna óviðráðanlegra aðstæðna sá ég ekki fleiri viðburði á Airwaves þetta árið. (Mér skilst hins vegar að "!!!" hafi verið magnaðir.)

sunnudagur, október 21, 2007

Laugavegurinn 2007





föstudagur, október 19, 2007

Airwaves: 2. dagur

Í gær var 2. dagur Iceland Airwaves. Því miður sá ég mér ekki fært að mæta 1. kvöldið, en var þeim mun spenntari að sjá atburði fimmtudagsins. Kvöldið átti að byrja á NASA á "Slow Club", en þangað áttum við ekki heimagengt sökum seinagangs. Því ákváðum við að skella okkur beint á Listasafn Reykjavíkur.

Jenny Wilson
Þetta var hresst númer. Hafði eingöngu heyrt lagið "Let My Shoes Lead Me Forward" með henni. Jenny spilaði sjálf á gítar, en með henni var önnur dama á gítar, ein á píanó og feiminn strákur á bassa. Ásláttur var á formi trommuheila. Þeim tókst að ná upp ágætri stemmningu á þeim ca. 45 mín sem þau spiluðu. Óttalega krúttulegt allt saman.

Lay-Low
Sá nokkur lög með þeim. Fínt köntrý.

Grizzly Bear
Ef það var einhver ein hljómsveit sem mann langaði að sjá þetta kvöldið umfram annað, þá var það þessi. Platan "Yellow House" frá 2006 er stórgóð og gaf góð fyrirheit. Varð ekki fyrir vonbrigðum (en góðvinur minn GRV varð það hins vegar).

Late of the Pier
Rétt náði í skottið á þessum drengjum á NASA upp úr miðnætti. Sá einhver 4 lög með þeim. Komu vel út og náðu upp frábærri stemmningu.

mánudagur, október 08, 2007

Fabrisíus Hólmfastur

miðvikudagur, október 03, 2007

Gleymdi að segja ykkur frá því...

...að ef allt fer samkvæmt áætlun mun ég verða stoltur faðir í desember.

15. desember er dagsetningin.

Í 20. vikna sónarnum var það mál manna að bumbubúinn hefði höfuðlag mitt. Hér skal ekkert fullyrt um það, en á myndinni má m.a. sjá höfuðlag mitt þegar ég var lítill: