Becks

cracking bloke

mánudagur, september 26, 2005

www.allmusic.com

www.allmusic.com komin í linkana...snilldarsíða.

sunnudagur, september 25, 2005

Tom Cruise drepur Opruh!

Tom Cruise drepur Opruh Winfrey.

föstudagur, september 23, 2005

Ávaxtahleifur

Ég var áðan að útbúa ávaxtahleif og er hann núna í 1. lyftingu. Þið getið fundið grunnuppskriftina að brauði á www.jamieoliver.com og svo á 2. skrefi bætið þið út í:
*200g apríkósur
*200g rúsínur
*100g döðlur
*milli fingra af kanil
*1 negulnagli
(Myljið þurrefnin og fínsaxið þurrkuðu ávextina.)

þriðjudagur, september 20, 2005

Klukk!

Ég hef verið klukkaður af söngfuglinum Ingrid...
1. Ég er hress kjentinum.
2. Ég elda töluvert og næst þegar ég elda kjúlla ætla ég að troða blöndu af steinselju, hvítlauk og sítrónuberki/safa inn á bringuskinnið...salt, pipar og góða ólífuolíu líka að sjálfsögðu.
3. Ég er ástfanginn.
4. Ég er að hlusta á plötuna Low með David Bowie þessa stundina...frábær plata.
Annars var ég í Skífunni áðan og keypti mér 7 plötur:)
5. Fór á Franz Ferdinand og þeir voru magnaðir!

Jæja, ég klukka Jennýju (svo hún fari nú að blogga stelpan), Frikka, Vöku, Árna og Ólöfu.

sunnudagur, september 18, 2005

ble

Bætti Vöku í linkana...má þess geta að hún er frábær Leoncie eftirherma með meiru :)