...er uppáhalds hljómsveitin hans Óla Hilmars. Svo mikið vita flestir sem þekkja eitthvað til mín. Ef ég er einn heima veit ég ekkert skemmtilegra en að hækka "by the way" í botn og spila lúftgítarinn af stakri snilld !
Velgengni Red Hot er einum manni að þakka og það er John Frusciante. Hljómsveitina skipar mjög færir hljómfæraleikarar (Flea er besti bassaleikari í heimi og Chad Smith er einn besti fönk-rokk trommuleikari sem finnst) og ágætis söngvari (Anthony Kiedis) sem semur fínustu melódíur. En það þarf eitthvað meira til að skapa frábæra tónlist....það þarf séní og það er sko John svo sannarlega.
John Frusciante fæddist á því herrans ári 1970 í New York. Hann byrjaði snemma að spila á gítar og þótti efnilegur. Á unglingsárum flutti hann til Los Angeles ásamt móður sinni. Segist hann sjálfur hafa eytt unglingsárum sínum í að "fróa sér og spila á gítar". Hann sannfærði foreldra sína um að hann stundaði fullt nám með því að sýna pappíra sem hann falsaði. Í raun gerði hann fátt annað en að spila á gítar og að venju æfði hann sig 15 klukkustundir á dag. Fljótlega varð "Red Hot Chili Peppers" uppáhalds hljómsveitin hans og sótti hann hverja einustu tónleika sveitarinnar í borginni. Árið 1987 gáfu Red Hot út plötuna "the uplift mofo party plan" sem skaut þeim á stjörnuhimininn og þeir urðu mjög vinsæl "underground" sveit í borg englanna.
Á einum tónleikum hljómsveitarinnar tókst John að komast baksviðs og ræða við goðin sín. M.a. spurði gítarleikari hljómsveitarinnar, Hillel Slovak, hann hvort hann mundi halda jafn mikið upp á þá ef þeir væru vinsælari. Hann sagði að það kæmi ekki til greina, það frábæra við sveitina væri hvað hún væri mikið "underground" og fönkí.
Árið 1988 á sér stað mikill harmleikur þar sem Hillel Slovak gítarleikari sveitarinnar deyr af of stórum skammti heróíns en neysla hans og Anthony Kiedis hafði aukist til muna við Evróputúr sveitarinnar í kjölfar "the uplift mofo party plan". Fannst hann dáinn í íbúð sinni. Í kjölfarið hætti trommuleikari sveitarinnar og Anthony og Flea stóðu eftir einir.
Þeir ákváðu að halda starfi hljómsveitarinnar áfram. Chad Smith var fenginn á trommurnar og gítarundrabarnið John Frusciante var fenginn á gítarinn og gekk hann þar með í uppáhalds hljómsveit sína...aðeins 18 ára gamall !!!
Í kjölafarið kom platan "mothers milk" árið 1989 sem varð gríðarlega vinsæl og innihélt lög eins og "higher ground" og "knock me down". Leiðin var greið og allt lék í lyndi hjá hljómsveitinni.
Árið 1991 gaf hljómsveitin frá sér svo meistaraverkið "blood sugar sex magic". Urðu Chili Peppers nú heitasta númerið í bransanum og ekki varð séð fyrir endann á vinsældunum. Var lagst í stóran túr um heiminn til að seðja ótal aðdáendur hljómsveitarinnar sem hafði heiminn að fótum sér.
En það reyndist meðlimum hljómsveitarinnar erfitt að halda haus og ekki síst hinum kornunga John Fruscinte en hann og söngvari hljómsveitarinnar töluðust ekki við lengur. Svo gerðist hið óvænta....rétt fyrir tónleika á einum af stærstu tónleikastöðum Japans tilkynnir John Frusciante hljómsveitinni að hann sé hættur. Hljómsveitin sannfærir hann um að spila á umræddum tónleikum en daginn eftir var hann í flugvél á leiðinni til Los Angeles....
to be continued.. :)