Becks

cracking bloke

mánudagur, júlí 19, 2004

Næsta Idol stjarna ???

Ætli það sé ég??? Það munum við fá að kynnast er nær dregur því Becksinn er búinn að skrá sig. Lengi hefur mig dreymt að syngja mig inn í hjörtu landans og bræða svo sem nokkur stúlkuhjörtu fyrir alþjóð. Svo er bara spurning hvaða lag maður á að syngja....Breaking the Girl? Bohemian like you? Times like these? Hver veit....Bubbi beware....
 
Þættirnir OC hafa notið fádæma vinsælda upp á síðkastið og ber þar hæst tíðinda að þar er víst komin sápan fyrir strákana. Þættirnir eru óneitanlega vel gerðir og sosum ekki að furða að formúlan sé að virka. Ég er þó ekki einn af þeim......
Hefur svartur maður komið fram í þáttunum? Held ekki....ekkert nema kynhreinir aríar sem setja upp örvæntingarsvip í lok hvers atriðis....fussumsvei. Það versta er hins vegar hvað þessi aumi OC skríll getur haft áhyggjur af gjörsamlega neinu. ,,Ónei, kærastan mín var að horfa á annan gaur, best að drepa mig!!!!".  Vitleysingar...
 
Um helgina var skroppið til eyrar þeirrar er kennd er við stokk og tjaldað í blíðviðri. Þetta reyndist hin besta afslöppun. Snæddum við á veitingastaðnum "Við fjöruborðið" og  varð úr frábær kvöldstund....geðveikur staður. Þeir sem hafa farið þarna vita hvað ég meina. Karlinn var grand á því og pantaði súkkulaðitertu í deser en fékk hins vegar einn áttunda úr þrefaldri súkkulaðiköku dauðans. Ég hafði á tilfinningunni að það væri verið að gera grín að mér: ,,Reyndu að klára þetta helvítið þitt".
Ógisslega góð engu að síður...
Maður ferðarinnar var Kalli sem gerði sér lítið fyrir og skokkaði um Stokkseyri á nærbuxum einum fata.
 
Heyrumstumt
 

sunnudagur, júlí 11, 2004

er líf eftir interrail ??.....

og svarið er já...tíminn á railinu mjög mátulegur og drullugott að vera kominn til baka. Mæli með einu slíku og þó þau væri tvö...þú ert bara svo ferskur og nýr líkt og í Nýkaupi þar sem ferskleikinn ku búa. Yfirleitt ferðast maður allt of lítið og hjakkar einungis á einhverjum ferkílómetrum hér á Suðvesturhorninu. Hávamál kenna manni m.a. að ferðast víða og vera sjáfbjarga. Það er góð speki.

Endilega kíkið á heimasíðu Möggu og sjáið myndirnar úr ferðinni. Stelpan er búin að skrifa comment við allt og alles...hefði viljað sjálfur geta boðið upp á slíkt hið sama en kjáni juniore lét Ítalaskratta stela digitalkamerunni í Pisa (sem er annars gott pleis).

ég er farinn að lesa í Da Vinci Code...

hilsen

laugardagur, júlí 03, 2004

le petit garcon

hey dudes nu er madur buinn ad eyda tremur frabaerum dogum i Paris...maeli eindregid med henni og er hun asamt Florens skemmtilegasta borg ferdarinnar.

Vid tremenningarnir vorum ad koma ur mat hja Runu fraenku og Dodda og tad var aldeilid vel tekid a moti okkur enda hafa tau avallt verid hofdingjar heim ad saekja...takk fyrir okkur ! :)

Vid byrjudum daginn i Sacre Caeur kirkjunni sem er i nordurhluta borgarinnar en tadan ser madur yfir hana alla, faranlega flott. Einmitt tar a trepunum var tekid atridid i Amelie tegar hun er ad lokka gaurinn og laetur hann horfa i sjonauka tid vitid hvada atridi eg meina... Og rett hja var torgid med listamonnunum sem teikna portrett myndir af ter og svo letum vid oll klippa ut skuggamyndir af okkur en teir na manni ekkert sma vel...

Nu er ferdin farin ad styttast i annan endann og haldid verdur a klakann goda annad kveld og eg farinn ad hlakka til ad hitta ykkur oll

C YA

Oli juniore "Becks"