Becks

cracking bloke

þriðjudagur, nóvember 29, 2005

Stadium Arcadium

Loks hafa liðsmenn Red Hot Chili Peppers ælt út úr sér hvenær nýja platan kemur og hvað hún kemur til með að heita. Gripurinn lendir í apríl og mun heita "Stadium Arcadium".
www.rollingstone.com
Stadium Arcadium í afmælisgjöf takk fyrir!:)

mánudagur, nóvember 28, 2005

Ísæææló...ísæææló lóóófalóóó

Skellti mér á tónleika Sigurrósar í Höllinni í gær. Amína hitaði upp, þar var á ferð strengjakvartettinn sem spilar undir hjá Sigurrós, í tilraunastarfsemi plokkandi hitt og þetta.
Svo steig Sigurrós á stokk og spiluðu í hátt í tvo og hálfan tíma. Efnið kom af öllum plötunum en nýju plötunni að sjálfsögðu gerð góð skil. Þeir voru klappaðir upp (tóku þá m.a. nýtt lag) og enduðu herlegheitin á síðasta lagi plötunnar "()". Frábærir tónleikar, rétt eins og í Háskólabíói fyrir 3 árum.

laugardagur, nóvember 19, 2005

Hvað segir stofnfruman þín gott?

Fólk er misgott í að tjá sig við mismunandi aðila. T.d. koma kona ein í Kastljósið að fjalla um "DNA-heilun" og sagðist m.a. oft spjalla við stofnfrumuna sína. Ekki amalegt það! Væri forvitnilegt að vita hvaða stofnfruma líkama hennar hlýtur þann mikla heiður tala við húsbóndann.
Kona: "Hvað segir stofnfruman í dag?"
Stofnfruma: "Æji, ekkert sérstakt. Bara sama gamla..."
Kona: "Á að djamma um helgina???"
Stofnfruma: "Nei, orðin leið á þessu djammi. Ætla bara að vera heima og tjilla."
Blessaður...
Eftirfarandi er tekið af www.hugveislan.is:

"Reiki er heilun. Reiki er ein af mörgum heilunaraðferðum. Reiki er hvorki betra né verra en aðrar heilunaraðferðir en það hentar sumum betur en öðrum. Það sama gildir um aðrar heilunaraðferðir."

Af þessu má læra það:
a)reiki er heilun
b)reiki er hvorki betra né verra en aðrar heilunaraðferðir
c)reiki hentar sumum en sumum ekki

Svo einfalt er það!:)

föstudagur, nóvember 18, 2005

tónlist.is

Ég hef það að reglu að lýsa því yfir ef ég rekst á plötu sem slær mig í rot. Í þetta skiptið er það platan:


Ótrúleg plata! Meistaraverk. Sufjan Stevens er snillingur.
Kaupið hana, halið hana niður, fáið hana lánaða eða stelið henni...bara ekki fara á mis við hana.

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Riise tapar veðmáli

John Arne Riise, leikmaður Liverpool, tapaði veðmáli í playstation við félaga sinn í norska landsliðinu.

föstudagur, nóvember 11, 2005

Hvaðan kemur kjötið?

Ég er kjötæta, og reyndar langflestir sem ég þekki. Mér finnst sunnudags-lambalærið hrikalega gott, ekki síður svínakótilettur (m/timjan, sítrónu og pestó...mmm) og ekki hata ég nautasteikina.
Sumir kjósa ekki að leggja sér dýr til munns og er það eitthvað sem ég virði fullkomlega. Ég skil þeirra sjónarmið vel og auk þess er hægt að gera frábærar máltíðir án þess að kjöt eða fiskur komi þar við sögu.

Í nýjustu þáttaröð Jamie Oliver ferðast hann um Ítalíu og kynnir sér ítalska matargerð.
Í síðasta þætti heimsótti hann ítalskan sveitabæ, þar sem honum er boðið að snæða kvöldverð. Elda átti lamb og var Jamie sýndur sá heiður að skera lambið á háls.
Nú er allt vitlaust á Bretlandi (víðar) vegna þessa.

Mér skilst að það hafi verið viðvörun í upphafi þáttarins.
Að slátra lambi á þennan hátt er eitthvað sem hefur verið stundað öldum saman og er enn gert þann dag í dag.
Að kjötætur skuli fordæma þennan verknað er ótrúleg hræsni. Hvaðan halda þau að kjötið komi? Kannski að maður ýti á einhvern hnapp í Hagkaupum og þá pompi niður svínabógur í sellófani, framleiddur í þar til gerðri vél?
Er þetta svo skelfilegt?
Kjúklingar í örsmáum búrum, erfðabreyttir svo það vaxi ekki á þeim fiður sem eru að lokum drepnir af maskínu sem gefur þeim rafstuð og klippir af þeim hausinn...ÞAÐ er skelfilegt.

miðvikudagur, nóvember 02, 2005

Topp tíu

Bestu plöturnar mínar:

10. The Smiths - The Queen Is Dead
9. Jeff Buckley - Grace
8. David Bowie - Low
7. RHCP - By The Way
6. Neil Young - Harvest
5. The Beatles - Rubber Soul
4. Beach Boys - Pet Sounds
3. RHCP - Blood Sugar Sex Magic
2. Nick Drake - Five Leaves Left
1. Flaming Lips - The Soft Bulletin