Háls, nef og eyru
Um þessar mundir er ég við störf á Göngudeild háls-, nef-og eyrnalækninga. Dvölin hefur verið góð og allir hafa tekið vel á móti manni. Viðfangsefnin eru miðeyrnabólgur, hlustarbólgur, nefbrot, svimi og hálsbólga svo fátt eitt sé nefnt. Þar mun ég dvelja þangað til námið tekur við á ný um mánaðarmótin.
Í sumar hef ég ferðast víða um landið okkar í stað þess að halda utan landsteinanna. Mánaðarmótin júní-júlí gekk ég Laugaveginn margfræga í góðum hópi. Sú ferð lukkaðist með eindæmum vel. Svo vel að ég skellti mér á ný í göngu í lok júlí, en þá ferðaðist ég með hópnum "Skinny" um Hornstrandir. Þá sigldi bátur með okkur inn í Hrafnsfjörð hvaðan við gengum yfir Skorarheiði og yfir í Furufjörð. Þaðan héldum við til Þaralátursfjarðar og loks í Reykjarfjörð. Þar gistum við loks í nokkra daga, en þar góð aðstaða og frábært að vera.
Annars reyni ég að njóta hvunndagsins þegar ég er ekki að vinna. Það er fátt betra en að borða góðan mat í góðum hópi. Nú um daginn fengum við Kalla í heimsókn. Matseðill kvöldsins var einhvern veginn svona:
Forréttur: Crostini og meðlæti
Aðalréttur: svínakótilettur með timjan, sítrónu og pestó
Eftirréttur: ávaxta fondu
Þetta heppnaðist með afbrigðum vel. Þegar líða tók á kvöldið var farið að rannsaka hvort væri betra; jarðarberjamojito eða ananas og bananamojito. Eftir miklar og líflegar umræður var sameiginleg niðurstaða viðstaddra að jarðarberjamojito hefði vinninginn.
