Becks

cracking bloke

föstudagur, apríl 29, 2005

Það er...

...rugl gott veður. Kominn tími til að fara í sund. Man ekki hvenær ég fór síðast í sund.
Nú er það ónæmisfræði, og ég verð að segja að yfirferðin í þessum kúrs er sú langhraðasta sem ég hef kynnst. Það sést e.t.v. best á því að leiðbeinendur okkar í seminar verkefninu (sem kenna öðrum þetta sama efni) sögðu okkur að nemendur þeirra kvörtuðu undan því að þetta efni væri kennt á einu misseri...
Við fáum mánuð:/

föstudagur, apríl 22, 2005

"Eigi skal gráta Björn bónda heldur safna frímerkjum"

Hann er sniðugur hann Megas.
Sá myndina "Sahara" í gær...fínasta afþreying nema Matthew McCouneghey (held þetta sé rétt skrifað hjá mér) er full smeðjulegur. Steve Zahn er alltaf hress og skemmtilegur.
Skrapp í bústað síðustu helgi með Jennýju að slappa af og elda góðan mat. Það gerðum við svo sannarlega. Við elduðum:
-Fullkominn kjúkling með Heimsins besta bakaða lauk
-Pasta (sem við bjuggum sjálf til) með villisveppum
ofloflofl
"Heimsins besti bakaði laukur" er eitt af því fyrsta sem ég eldaði eftir Jamie Oliver. Hann er ruuugl góður. Fyrst sýður maður laukana í potti í ca. 15 mín til að mýkja þá upp. Svo sker maður ca. 1/3 ofan af lauknum og býr til holu ofan í hann.
Svo saxar maður laukinn, hvítlauksrif og rósmarín og hendir á pönnu, léttsteikir það og svo hendir maður rjóma og parmesan osti yfir og setur svo gumsið ofan á laukana og vefur svo beikonsneið utan um laukinn og bakar í ca. 25 mín..
Þetta er fáránlega gott!

föstudagur, apríl 15, 2005

Prófin búin...í bili

Jæja þá er þetta törn búið. Bæði prófin gengu svona lala...vona það besta og búast við því versta.

Ég er orðinn 22. ára:

Skál fyrir því.

Góður afmælisdagur - nýbúinn með prófin og bara í afslappelsi.
Ég fékk m.a.:
-mortél frá ömmu
-klikkað úr frá Jenný :*
-skó frá Ma+Pa
-DVD frá Kid
-Kryddjurtasaxara og bol frá Jónsa og Hugborgu og strákunum

Eins og sést fékk ég ýmislegt til að hjálpa mér við matargerðina. Ég er orðinn algjörlega húkkaður á allri matargerð enda algjör snilld að elda góðan mat og ekki leiðinlegra að borða hann. Þetta kom bersýnilega í ljós í partýinu hjá Árna Gilla um kvöldið eftir lífeðlisfræðiprófið þar sem ég fór að tala um eldamennsku við nokkurn veginn alla sem ég spjallaði við:)

fimmtudagur, apríl 07, 2005

1 down - 1 to go

Þá er lífefnafræðin búin. Nú tekur við lestur fyrir lífeðlisfræðina...

Kominn með miða á Franz Ferdinand - skál fyrir því.

Svo eru QOTSA og Foo Fighters að koma í sumar...úje.

föstudagur, apríl 01, 2005

Rauði saabinn er...gulur!

Jújú orðrómurinn er ekki uppspuni. Gamli rauði saabinn er ekki rauður lengur. Hann fékk eilitla upplyftingu þar sem ryð var fjarlægt og beyglur lagaðar en gamli sorrí gráni hefur fengið að kynnast hinu og þessu á sinni löngu bílsævi. Auk þess var hann sprautaður gulur og er ég hinn ánægðasti með útkomuna.

Pútti og saabinn

En þó ætla ég ekki láta þar við sitja. Ég hef fengið í hendurnar gamla Porsche vél upp á 185 hestöfl sem er verið að setja í hann núna svo krafturinn ætti að aukast umtalsvert.