Becks

cracking bloke

miðvikudagur, mars 31, 2004

Sökum anna kemst Óli Hilmar Ólason ekki til þess að...

setja inn hugsanir sínar og uppfræða almenning um líðan sína og heilsu. Ég, persónulegur aðstoðarmaður hans mun því sjá um hinn nær daglega pistil í dag. Ég fæ ekki betur séð en Óli sé allur hinn hressasti og líti óvenju vel út í dag. Hann er nú á leiðinni heim til að fylla hug sinn af fræðsluefni, en vill þó fyrst óska fólki velfarnaðar á hinum vandrataða lífsvegi og ráðleggja fólki að borða nóg af baunum og halda sig frá fangelsi

Frú Amundsen, persónulegur aðstoðarmaður Óla Hilmars Ólasonar.

Teymisvinnan er eitthvað sem koma skal...

...og við stundum hana stíft hér í kjallaranum í Læknagarði. Umræðuefnið er Cystic Fibrosis eða slímseigjusjúkdómur sem er algengasti erfðasjúkdómurinn í hvítum mönnum þar sem 1/20 eru berar og 1/2500 hafa einkenni. Þetta er víkjandi erfðasjúkdómur sem lýsir sér í þykkri slímmyndun í t.d. brisi og lungum. Stafar það af því að Cl- göng í frumunum stíflast en vatn er talið fylgja með jónunum. Sérdeilis prýðilegt...
Síðasta færsla mín skráist sem súrasta færsla ever. En nú þykir mér mjög vænt um þessa litlu, ísúru og vangefnu færslu svo ég ætla bara að leyfa henni að vera.

Samskiptafyrirlesturinn var í gær og ég held við höfum staðið okkur vel. Ekki amalegt að vera búinn með það.

mánudagur, mars 29, 2004

Magga er hress gella...

...og ekki á lausu. Ég sit við hliðina á henni hér í lífeðlisfræði. Við stefnum á að taka interrailið á þetta í sumar. Það yrði sko ekki leiðinlegt.
Annars lítur allt út fyrir að maður verði flokkstjóri enn eitt árið. Kann ég vel við þá vinnu. Í fyrsta lagi: útivinna...það er algjört möst fyrir mér. Ekkert mál að vera úti í rigningunni - ég yrði snargeðveikur ef ég ætti að hanga inni í sumarvinnunni. Vinnan er að mestu garðyrkjuvinna: leggja þökur, gróðursetja, moka o.s.frv.. Kann vel að meta slíka vinnu.

miðvikudagur, mars 24, 2004

Ekki hefði ég búist við því...

...að sjá eðalhljómsveitina "The Pixies" á sviði, og þá sérstaklega hér á Íslandi. Festi kaup á miða á tónleika sveitarinnar 26. maí í Kaplakrika og verð ég þar ásamt 2500 öðrum útvöldum einstaklingum að hlýða á ljúfa tóna sveitarinnar...sjitt hvað þetta verður gaman. Ég held ég pissi í buxurnar þegar þeir taka "Where is my mind"...kalt mat. Eða Debaser....eða Here comes your Man....eða....
Áhrif þeirra verða seint ofmetin. T.d. sagði Kurt heitinn Cobain að hann hefði eingungis verið að reyna að stæla Pixies þegar hann samdi "smells like teen spirit".
Að lokum sauð upp úr ´93 vegna ágreinings milli tveggja aðalsprautanna, Black Francis (aðalsöngvari og gítarleikari) og Kim Deal (bassi + bakraddir) þar sem Black leyfði Kim ekki að vera með í lagasmíðum hljómsveitarinnar. En sem betur fer hafa þau grafið stríðsöxina og ætla að hefja endurkomu sína á Íslandinu góða. Ekki amalegt það, gætu leigt sér bústað og andað að sér ferskri fjallagolunni.



laugardagur, mars 20, 2004

Læknaleikarnir

Sit ég fyrir framan tölvuna með gítarinn í hendi. Hata það ekki...
Í gær voru læknaleikarnir. Minns var að sjálfsögðu mættur til að taka þátt. Skipuðu liðið okkar ég, Martin og Ölli. Átti það eftir að reynast skeinuhætt blanda. Þrautirnar voru 9. 3 drykkjukeppnir (bjór + staup), spilaborg, kókosbolluát (sorrý Ölli, þú áttir sem sagt að borða kókosbolluna eftir kókið :)) þar sem froðan kom út um eyrun á Örlygi, múmían + lýsisstaup + bleia, langstökk án atrennu (smókaði það), limbó og síðast en ekki síst hópdans þar sem einn átti að mæma (Martin er kóngur mæmsins).
Sigurgeir og félagar unnu þetta og vel að sigrinum komnir. Við enduðum í 4. sæti. Sem sagt snilldarkeppni og svo snilldardjamm á eftir...vonandi verður þetta að árlegum viðburði :).

Myndir frá læknaleikunum á www.hi.is/~mis/myndir




"Oooooooooog BACKSTREET"



fimmtudagur, mars 18, 2004

Allt að verða vitlaust...

...hér á blogginu. Eða þannig. Þetta blessaða blogg hefur reynst allt annað en gagnvirkur miðill síðustu dagana. Á þar góðviðri stóran þátt, en eftir rokrassgatsvikuna miklu kom kreisí gott veður sem hefur orsakað ákafa ástundun knattspyrnu og körfubolta. Og varð þá námið undir. Og sömuleiðis bloggið :)

Í gær var fórum við í fótbolta á Való. Mjög gaman - 3 lið og skipt hratt. Verð að segja að mitt lið - Ég, Kári og Atli - var óstöðvandi. Sambataktarnir voru slíkir að Ronaldinho hefði þótt gaman að.







mánudagur, mars 08, 2004

Vísó á föstudaginn...

...og skráist hún sem besta vísindaferð sem ég hef farið í, og hafa þær þó verið mjög flottar. Þessi ferð skar sig aðallega úr fyrir einn hlut:



Þeir voru ófáir kallarnir sem hurfu ofan í læknanema þetta kvöldið. Auk þess voru frábærar veitingar og rautt og hvítt með því. Snilldin ein!

miðvikudagur, mars 03, 2004

100 listinn minn...

...værs´go :)

1. Ég heiti Óli Hilmar Ólason
2. og er kallaður Óli
3. og er fæddur 14. apríl 1983
4. Ég er skírður í höfuðið á föður mínum
5. Ég var bolla þegar ég var lítill og 18 merkur þegar ég fæddist (!)
6. Besti vinur minn var Hrund í Vesturbergi
7. Bjó í Breiðholti þangað til ég var 4. ára
8. Hef búið í Kópavogi eftir það og lít á mig sem Kópavogsbúa
9. Datt á ryksugu þegar ég var lítill og hef ör á nefinu til að sanna það :)
10. og stundaði það annars grimmt að detta á hausinn
11. Var í Digranesskóla og síðan í MR og nú í læknisfræði
12. Er yngstur fimm systkina
13. Æskuvinur minn er Halli sem er nú í námi í USA
14. Dúxaði í Digró
15. Þegar ég var lítill var ég alltaf að teikna landa-og fjársjóðskort og flugvélar
16. og sagði frá því hvernig ég “braut gluggann í flugvélinni með exi”
17. sem 2. ára snáði á ekki að vita
18. Réðst á býflugu í Finnlandi 1 árs
19. sem svaraði með stungu í hálsinn
20. Æfði handbolta lengi og þótti efnilegur
21. og fékk svo viðbjóð á honum
22. Safnaði Magic Johnson í körfuboltamyndaæðinu
23. Er “poolari”
24. sem er ekkert æði um þessar mundir
25. Ég vil trúa því að meira taki við eftir þetta líf
26. þó ég hafi engar sönnur á því
27. Annars lífsglaður tappi
28. Keyri á rauðum saab
29. sem mér þykir mjög vænt um
30. Fyrirlít umfram allt tækifærissinna
31. Hef elskað
32. og hef verið að elta það síðan (þ.e. tilfinninguna)
33. Hef mikla þörf fyrir að hreyfa mig
34. og hef verið mæta aftur í Sportið að undanförnu
35. Við búum í fallegum en jafnframt sorglegum heimi
36. Er að fara í vísó á morgun
37. úúuúúúú jeeeeehhhhhh´!!!!
38. Ég þarf á góðu fríi að halda
39. og stefni á interrail í sumar eða eitthvað álíka
40. Sáttur með að hafa valið MR
41. því þar kynntist ég frábærum hópi
42. Hef spilað á gítar í 3 ár
43. og kann öll uppáhaldslögin með Red Hot :)
44. Fyrirmyndin í tónlistinni er John Frusciante
45. En aðalfyrirmyndir mínar eru engu að síður foreldrar mínir
46. og nr. 1,2 og 3 eru vinir og fjölskylda
47. Er fyrst núna að læra að halda kjafti
48. en ég á það til að steypa allsvakalega
49. Það grefur undan trú fólks á mér
50. Var alltaf aggresívur í hegðun og tali
51. en maður tapar svo mikilli orku á því
52. Ég er annars hógvær og rólegur
53. og er sáttur við lífið og tilveruna
54. Get verið mjög lokaður gagnvart fólki
55. en hleypi sumum að mér
56. og ef ég fer illa út úr því líður mér mjög illa
57. Ég get verið óttalegt jójó í andlegum málum
58. og á það til að vera langt, langt niðri
59. og finnast engin leið út
60. Oftast er það þá móðir mín sem bjargar mér
61. Mömmustrákur
62. Stelpur eru skemmtilegar
63. og strákar líka
64. en ekki þannig :)
65. Grasið er ekki grænna hinum megin
66. Ég tek vel á því í djamminu (með hléum)
67. og djúsa
68. og hef alvarlega verið að velta því fyrir mér að hætta að drekka
69. Hef mikið keppnisskap
70. sem hefur komið mér í bobba oftar en einu sinni
71. Fékk lánaðan pedala hjá Frikka
72. og kann sólóið í “like a stone”
73. Er að lesa um þátt lyflækna í teymisvinnu
74. Mér finnst gaman að kaupa flott föt
75. og þá sérstaklega nýja skó
76. Fordæmi Paradise Hotel
77. og finnst það mesta samansafn af fæðingarhálfvitum síðan Alí Baba var og hét
78. HK-ingur
79. og varð Íslandsmeistari með þeim í handbolta
80. Hata heldur ekki fússarann og körfuna
81. Lakers maður í NBA
82. Líður best að skemmta mér í góðra vina hópi
83. Sekk í skriðsundi
84. en sudda góður í bringusundi
85. Fæddur sama dag og Titanic sökk
86. “Chicken divine” à la mama er besti matur sem ég fæ
87. Hef aldrei brotið bein
88. og er það vel
89. Kallaður sömuleiðis “Becks”
90. en það gælunafn fann Alli body
91. eftir að ég sýndi Beckham takta í “homma” í próflokaferð vorið 2001
92. Ég sækist eftir veraldlegum gæðum
93. svo að ég hafi í mig og á og geti notið lífsins
94. Hlakka til að verða læknir
95. Ætla að fara meira í sund
96. og í heita pottinn hehe
97. Ég á góða vini sem mér þykir vænt um
98. og fullt af kunningjum eins og aðrir strákar
99. Ætla annars að njóta rússíbanaferðarinnar
100. því annars væri hún lítils virði

þriðjudagur, mars 02, 2004

Loksins, loksins...

...sá blessuð akademían að sér. Nú hafa snillingurinn Peter Jackson & co. fengið það sem þeir eiga skilið. Return of the King vann til 11 verðlauna á óskarnum og jafnaði þar með met Ben Hur og Titanic.




Peter Jackson ásamt sir Ian McKellen í hlutverki Gandálfs hins hvíta