Batman Begins

Skellti mér á "Batman Begins" fyrr í kvöld. Ég einbeitti mér að því að draga úr væntingunum þar sem allir eru að missa sig yfir henni, og réttilega svo.
Þetta er tvímælalaust besta Batman myndin, frábærlega valið í hlutverk og svo eru Íslandssenurnar gríðarlega flottar og fór þjóðarstoltið alveg á fullt enda tökurnar sérlega glæsilegar.
