Becks

cracking bloke

þriðjudagur, apríl 27, 2004

Genaklónun

Vegna fjölda áskorana ætla ég að bjóða fólki slideshow frá fyrirlestri mínum í erfðafræði síðan í MR. Hann ber heitið "Genaklónun". Þetta efni er m.a. í námsefni til prófs hjá okkur læknanemum. Njótið heil!
Genaklónun

föstudagur, apríl 23, 2004

Rabamycin

Fátt hefur á daga mína drifið annað en fróðleikur um mekaník frumunnar.
Fór á djammið með Kalla, Bönna og Dagnýju á miðvikudaginn í tilefni afmælis þess fyrrnefnda. Til hamingju með afmælið Kalli !
Félagi minn í læknisfræðinni hann Jóhann eignaðist son á sumardaginn fyrsta. Til hamingju Jóhann !
Annars verður fátt um fína drætti næstu vikurnar, stefni á að kíkja á Kill Bill 2 en þar ku vera mögnuð ræma á ferðinni.
Síðan hefur hlotið nýtt nafn. Endilega segið mér skoðun ykkar á því...

Fyrirsögnin kann að koma spánskt fyrir sjónir lesenda. Verðlaun í boði fyrir þann er getur hvað þetta er ! Og verða verðlaunin ekki af verri endanum.
Læknanemar og Helga Ögmundsdóttir (ég veit þú ert að lesa þetta Helga - ekki reyna að skrifa undir Counterstrike dulnefninu þínu!) eru útilokaðir frá þátttöku.


Laterz

laugardagur, apríl 17, 2004

Mæli með...

...að þið skoðið þetta. Ég efast um að nokkur sem lesi bloggið mitt stundi ölvunarakstur. Engu að síður hefur maður gott af þessu.

miðvikudagur, apríl 14, 2004

Afmælisblogg

Hann á afmæli í dag,
hann á afmæli í dag.
Hann á afmæli hann Óli,
hann á afmæli í dag.

Jú það er rétt, ég er 21. árs í dag. Var vakinn með köku og kaffi í rúmið, sérdeilis prýðilegt hér.
Svo er geggjaður kvöldmatur, en veisluhöld verða að bíða. Sálfræðipróf á föstudaginn auk þess sem það er af nógu að taka í frumulíffræðinni og eðlisfræðinni.

Þennan sama dag sökk einmitt Titanic. Skemmtileg tilviljun...
Kannski ég klifri upp á þak Læknagarðs með fagurri snót og öskri "I´m the king of the world" á þakbrúninni. Kannski ekki :)

þriðjudagur, apríl 13, 2004

Kántrýbær lengi lifi...

Hver er munurinn á Skagaströnd og Akranesi??? Nákvæmlega enginn. Ég stóð í þeirri trú a.m.k. alveg þangað til fyrir nokkrum dögum að ég var að spjalla við hana Kollu á msn-inu. ,,Ég er hérna á Akranesi hjá fjölskyldunni yfir páskana."...,,Já, einmitt...kántrýbær...geðveikt, bið að heilsa Hallbirni.",,Ertu eitthvað klikk þarna helv. djö. andsk..#%/&(%&($%)#))$%#."

"Áfram kántrýbær"

föstudagur, apríl 09, 2004

Kæru vinir og vandamenn...

það lítur út fyrir að drengurinn okkar hann Óli Hilmar Ólason hafi ekki gefið sér tíma síðan á sunnudag að setja niður hugsanir sínar og langanir. Sem persónulegur aðstoðarmaður hans finnst mér því við hæfi að taka af skarið og skrifa nokkur orð áður en vika verður liðin síðan ritað var á þessa síðu síðast. Já krakkar mínir, núna er föstudagurinn langi. Vér eigum að minnast þjáninga Jesús á krossinum og á næstu dögum upprisu hans. Undirrituð leggur til að við reynum nú svona einu sinni að vera svolítið þakklát fyrir eilíft líf. Það er nú ekki á hverjum degi sem að það eru x-mörg ár síðan eilíft líf var fyrst í boði.
En frá einum guðssyni til annars. Óli Hilmar Ólason er við hestaheilsu og hefur haldið sig að mestu við sitt ljúfa sjálf síðustu daga. Mun hann fagna upprisu guðs og eilífu lífi með súkkulaðiáti eins og flest allir þegar þar að kemur.

Með páskakveðju,
Frú Amundsen, persónulegur aðstoðarmaður Óla Hilmars Ólasonar

sunnudagur, apríl 04, 2004

Hugleiðingar í vikulok...

Rólegur sunnudagur, er að reyna að læra en það gengur löturhægt. Synti áðan í góða veðrinu og er fátt meira hressandi fyrir þynnkuna...
Fór nefnilega til hans Kára kubbs í gær í hálfgert kveðjupartý en drengurinn hyggur á landvinninga á fimmtudaginn. Ekta pulsupartý, MR reunion mætti segja. Var í bænum til 6, og tók leigara með Kolla hönki. Alveg merkilegt hvernig kvenfólkið límist á þann ágæta dreng...eins og mý á mykjuskán.

Enn ein hljómsveitin er bókuð hingað til lands í sumar. Nú voru það Metallica og verða þeir með tónleika 4. júlí. Hvernig stendur á þessum straumi eðalbanda á klakann? Sjálfur tel ég að Sigurrós eigi einhverjar þakkir skildar. Lars Ulrich trommuleikari Metallicu dýrkar Sigurrós og sá þá á tónleikum úti og langar eflaust mikið á sjá heimaland sérvitringanna.

Nú ætla ég að reyna að kynnast vini mínum Mítokondríusi aðeins betur...
Over and Out