Red Hot Chili Peppers, Den Grå Hal, Christiania
Ég skellti mér til Kaupmannahafnar á föstudaginn var með litlum fyrirvara. Af hverju??? Jú, af því ég vann miða á www.redhotchilipeppers.com á promo tónleika með Red Hot Chili Peppers. Þetta er ekki aprílgabb :)
Á miðvikudeginum fékk ég símtal þar sem mér var tilkynnt hvers kyns var. Ég hóaði í frænda og á föstudeginum vorum við í flugvélinni áleiðis til Köben, og sunnudagskvöld voru tónleikarnir áætlaðir.
Ég komst svo að því að tónleikarnir skyldu fara fram í Den Grå Hal í Christaniu fyrir framan ca. 700 manns. Þeir félagar halda sjaldan tónleika fyrir færri en 30.000 manns.
Við fengum miðana afhenta hjá konu að nafni Helene fyrir utan tónleikastaðinn.
Biðröðin inn í Den Grå Hal
Það er skemmst frá því að segja að við vorum einir af þeim fyrstu inn í salinn og vorum alveg fremst :) Eftir rúmlega klukkustundar bið stigu þeir á stokk og við tóku án nokkurs vafa þeir bestu tónleikar sem ég hef nokkru sinni upplifað. Að vera viðstaddur tónleika með Red Hot Chili Peppers á jafn litlum stað og svo lítilli fjarlægð, er ólýsanlegt.
Tónleikarnir:
Intro
Can't Stop
Charlie
Scar Tissue
Snow
I Feel Love
Dani California
The Bicycle Song
Me and My Friends
Otherside
I Could Have Lied
Tell Me Baby
Around the World
Don't Forget Me
Right on Time
Torture Me
By The Way
Encore:
Drum Medley/Solo
Soul To Squeeze
Give it Away
Nýju lögin hljómuðu gríðarlega vel, sérstaklega "Snow". Svo tóku þeir frábær lög sem þeir spila ekki á hverjum degi, eins og "Soul to squeeze" og "I feel love" þar sem John Frusciante fer á kostum.
Þess má geta að "Stadium Arcadium" verður frumflutt hér þann 1. maí á netinu. Hún kemur svo út þann 5. maí í Evrópu en 9. maí í BNA.
Við útbjuggum eftirfarandi spjald fyrir tónleikana:
(Rétt hjá ykkur, það er úr pizzakassa :) )
Það má með sanni segja að það hafi slegið í gegn og hafði hljómsveitin mjög gaman að þessu, ekki síst gítarleikarinn Frusciante en við vorum beint fyrir framan hann á tónleikunum.
Ef þið trúið mér ekki enn, smellið hér.
Farið í "se galleri". Þar má sjá umrætt skilti :)
Daginn eftir komst ég að því krónprins Dana ásamt sinni heittelskuðu Mary hafi mætt á tónleikana. Við urðum lítið varir við þau, enda fremst í hasarnum meðan þau hafa eflaust sopið kampavín aftar, umkringd öryggisvörðum.


Þessar myndir tókum við á símana okkar, og sýna þær vel hversu fáránlega nálægt við vorum goðunum.
Ógleymanlegt! Maður lifir á þessu a.m.k. út árið :)


