Becks

cracking bloke

föstudagur, janúar 26, 2007

Lúkk-a-læk



Er Eggert Magnússon Gollrir?




Eða er Gollrir Eggert Magnússon?


Hver veit...

sunnudagur, janúar 14, 2007

Mourinho á leiðinni frá Chelsea?



Nú gerast þær raddir enn háværari að Jose Mourinho ætli að segja upp starfi sínu sem knattspyrnustjóri Chelsea. Ástæðan fyrir því ku vera ósætti milli hans og stjórnar liðsins. Hann vill styrkja hóp sinn með kaupum á Micah Richards frá Manchester City og Jermaine Defoe frá Tottenham. En eftir að stjórnin stoppaði þau kaup er kauða víst nóg boðið. Hann fær litla vorkunn frá mér að þurfa að stýra þeim hóp sem hann hefur. Gott og vel, Terry og Cech eru meiddir og munar um minna. Leikmannahópur liðsins er þó engu að síður það sterkur, að leikur liðsins á ekki að hrynja við annað eins. Drogba, Lampard, Shevchenko, Wright-Phillips, Ashley Cole, Carvahlo, Ferreira, Boularhouz, Makelele, Ballack, Essien o.s.frv.o.s.frv..

Persónulegt mat mitt er að kallinn er að hræða stjórn Chelsea aðeins til að fá sínu fram.

föstudagur, janúar 12, 2007

"I who masturbate thinks this is the nine busta rhymes"

Uppskrift að góðu kvöldi:

* Drekka öl og spila thumb-master
* Í thumbmaster eru settar reglurnar:

- bannað að tala íslensku
- verður að drekka með öfugri hendi
- hver setning verður að hefjast á orðunum "I who masturbate..."

Þetta prófuðum við á djamminu á Akureyri. Mjög svo hressandi, eins og eftirfarandi myndskeið ber með sér:

Myndband