sunnudagur, júlí 24, 2005
miðvikudagur, júlí 13, 2005
mánudagur, júlí 11, 2005
laugardagur, júlí 09, 2005
TAN
Þetta finnst Becks fyndið:
www.laeknanemar.is:
Búinn að vera í sveittu tani. Réð til mín tvo ráðgjafa frá portúgal til að leggja línurnar í taninu. Búið að vera stíft prógram, dagurinn er byrjaður á því að standa nakinn við hafnarfjarðarhöfn og hugleiða, fá smá sjávarfrískleik í húðina og komast í nánd við brúnu áruna eða morochito muevo eins og þeir kallaða .síðan er borðuð létt jógúrt með dass af gulrótum sem gera kraftaverk (passa sig ! of mikið gefur appelsínugulan lit en ekki kastaníuna sem leitað er eftir). Mikilvægt er að jafna út orkuflæðið og er þá gott að fá sér ´vel sterka áfenga blöndu í háu glasi með regnhlíf og ganga sem mest um í slopp. Seinni partur dags fer aðallega í olíunudd en portúgalirnir blanda sína olíu sjálfir eftir tanblöndu sem ömmu þeirra birtist í draumi. Inniheldur hún meðal annars koníak, sólblómafræ og húðflögur úr sólbrenndri húð úr gamalli konu frá kúbu ásamt lifandi biogarde gerlum. Eru ávextir bornir í mig jöfnum höndum meðfram nuddi og hugleiðslu. Hef ég náð svo miklum andlegum þroska að ég þarf aðeins að loka augunum til að finna sólarolíulykt. Markmiðið er að geta með hugarorku tanað sjálfan sig án sólar. Get ég nú tanað stóru tá á vinstri fæti einungis með því að hugsa það. (minnir ´dáldið á kill bill og er í raun sama hugmyndafræðin). Má búast við því að ég verði meira að segja orðinn brúneygur þegar skólinn byrjar en þá er ég kominn í efsta stig tanleiðslunnar eins og portúgalirnir kalla það eða los guapos mucho muerto morrocco (rosalega sæti brúni skítugi marrokkóbúinn). Svefn er mikilvægur og fer hann fram í kari fylltu af myntu og safran sem fylla vitinn af framanleik og hugmyndin að verða andlega sem líkamlega hinn fullkomni tanaði maður. Tanus humanus.Vaka mundu tanið er í þér, þú þarft ekki sól bara réttan hugarramma. Fyrir mér er hver manneskja brún, hún er bara stundum lokuð innan i næpuhvítri pastel skel föla mannsins. Þú þarft að brjótast út, fljúga af jökulbreiðunni til strandanna og virða fyrir þér handklæðin.
Einar, læknisfræðinemi og Tan meistari.
fimmtudagur, júlí 07, 2005
Allt að gerast
Það er gaman að vera púlari í dag. Það var það ekki fyrir nokkrum dögum síðan en Steven Gerrard var búinn að biðja um að vera seldur. Þar sem Liverpool var enn ekki búið að bjóða honum nýjan samning var hann fullviss um að það ætti að selja hann fyrir háa upphæð sem ætti svo að nota til þess að kaupa nýja leikmenn í staðinn. Sem betur fer var þetta allt saman stór misskilningur og Steven Gerrard mun ásamt Jamie Carragher skrifa undir nýjan samning við Liverpool í dag.
Leiktímabil Liverpool hefst strax í næstu viku þar sem þeir leika við TNS eða Total Network Solutions frá Wales í 1. umferð Undankeppni Meistaradeildarinnar. Af nafninu að dæma er þetta eitthvað fyrirtækjalið...fyndið.
Rafael Benitez (knattspyrnustjóri) og Rick Parry (stjórnarformaður) hafa verið iðnir við kolann að styrkja liðið en eins og sást á árangri liðsins í deildinni vantaði sárlega breidd í liðið. Nú þegar hafa fjórir nýir leikmenn skrifað undir (Zenden, Reina, Gonzales og Barragan) og þá eru a.m.k. tveir til viðbótar á leiðinni: Peter Crouch og enginn annar en Luis Figo!
