hugleiðingar
jæja nú er skólinn farinn á fullt og verður næsta mánuðinum varið upp á Læknagarðinum...
Fólk á sínar aðferðir til að einbeita sér við lesturinn. Mín aðferð er TÓNLIST. Tónlist og aftur tónlist. Ég læri aldrei betur en þegar ég er vel einbeittur með góða tónlist í eyrunum. Í mínum heimi.
Núna er ég að hlusta á fyrstu Stone Roses plötuna sem er algjör klassík. Skyldueign.
Aðrar plötur sem ég er að hlusta á í augnablikinu:
Nick Drake - Five Leaves Left
The Smiths - Singles
The Cure - Galore
Nú um daginn kom svo út viðhafnarútgáfa af meistaraverki Jeff Buckleys "Grace". Mjög svo eigulegur gripur. Við erum að tala um þrefalda plötu: 1. diskur er gamla Grace, 2. diskurinn inniheldur B-hliðar og lög sem komust ekki á Grace (eins og hið magnaða "Forget Her") og sá 3. er DVD með heimildarmynd um gerð Grace með viðtölum við Buckley og restina af sveitinni sem gefur góða innsýn í hvers konar maður þetta var.

