Prófblogg
Já ég ásamt öðrum 2. árs læknanemum er kominn í sveittan próflestur fyrir tvö stór próf í byrjun apríl, lífefnafræði B og lífeðlisfræði B. Stíft prógram en þetta er allt mjög praktískt svo það er hið besta mál!
Eins og ég hef minnst á hér áður verður í plötuuppskeran með besta móti í ár. Hér koma nokkrar af þeim sem ég get varla beðið eftir.
Red Hot Chili Peppers
Þó ég sé alltaf að uppgötva nýja frábæra tónlist eru þeir enn sem komið er uppáhalds hljómsveitin. Þeir félagar fóru inn í hljóðver 16. mars með 35 ný lög í farteskinu. Flea bassaleikari hljómsveitarinnar segist aldrei hafa verið jafn spenntur yfir nýju efni sveitarinnar og nú. Sennilega kemur platan ekki út fyrr en með haustinu og þá í fyrsta lagi í ágúst/september. Get ekki beðið...
Flaming Lips
Ný plata er sömuleiðis væntanleg frá þessum snillingum. Wayne Coyne er Brian Wilson okkar tíma. Nýja platan kemur til með að heita "At War With The Mystics" sem er eilítið súrt eins og þeirra er von og vísa.
Coldplay
Ný plata í byrjun júní "X&Y". Nýr singull "Speed of Sound" í spilun í apríl. Chris Martin segir að þeir eigi aldrei eftir að toppa þetta efni. Spennó!
NIN
Ný plata í vor "With Teeth". Trent Reznor er snillingur. Ekki verra að meistari Dave Grohl ber húðir í nokkrum laganna.
Foo Fighters
Þeir hafa ekki klikkað hingað til. Nýja platan verður tvöföld þar sem önnur þeirra verður í rólegri kantinum en á hinni verður rokkið keyrt í botn. Hressandi...mjög hressandi.
Sömuleiðis kemur ný Franz Ferdinand plata með sumrinu. Sem sagt allt að gerast. Nú er bara að spara nóg af monning:)

