Kirsuberja focaccia
Það vita það orðið flestir sem þekkja mig eitthvað af ráði, að mér þykir mjög gaman að elda. Ég get hvergi slappað eins vel af og fyrir framan eldavélina. Sumir stunda jóga, aðrir stunda hestamennsku. Ég elda.
Það hefur ekki borið sérstaklega á áhugamálinu hér á síðunni undanfarið. Ég hef bloggað nokkra rétti og mælt með hinu og þessu, en ekkert sem hægt er að tala um. Nú hef ég hins vegar uppgötvað að þetta er e.t.v. ekkert sjaldgæft áhugamál meðal læknanema/unglækna. Ragnar Freyr unglæknir hefur verið duglegur að blogga um hina og þessa rétti sem eru hverjir öðrum girnilegri. Þetta er hvatning fyrir mína líka að koma loksins almennilega út úr skápnum hvað þetta varðar.
Ég ætla að byrja á því að setja inn uppskrift að gríðarlega góðu kirsuberja focaccia. Hún er upprunnin frá meistara Jamie Oliver.
Kirsuberja focaccia
Grunnuppskrift að brauði
1kg hveiti
625mL volgt vatn
30g ferskt ger (eða rúmlega 20g þurrger)
2 msk salt
2 msk sykur (eða hunang)
hveiti til að strá á borðið
Einnig:
1kg þroskuð kirsuber (eða 1-2 krukkur af kokteilkirsuberjum)
4 kúfaðar msk vanillusykur
115g smjör
Hef áður bloggað grunnuppskriftina. Hér kemur hún:
Grunnuppskrift að brauði
Loks á stigi 5 er deiginu skipt í tvennt eða fernt. Hver hluti er flattur út svo það sé ca. 2,5cm að þykkt. Í guðanna bænum ekki vera með tommustokkinn á lofti hér...:) Því næst er kiruberjunum dreift yfir og þrýst með fingrum niður í degið, svo það fái alvöru focaccia áferð. Svo er vanillusykrinum dreift yfir. Sömuleiðis smjörinu, sem þið klípið niður og dreifið yfir.
Því næst skal láta degið lyfta sér á ný á hlýjum stað. Ca. 30-45 mín..
Að því loknu eru brauðin bökuð í ofninum í rúmar 20 mín., þegar þau eru gorðin gyllt og flott. Sömuleiðis er fínt "trikk" að banka undir brauðið, ef fæst holur hljómur þá er brauðið fullbakað.
Þetta brauð er gríðarlega gott sem meðlæti með kaffinu. Ekki verra að fá sér vanilluís með því.
***
Þið getið annað hvort gert þetta á borðplötu eða í stórri skál. Ég keypti mér stóra skál í IKEA sem ég nota alltaf í brauðuppskriftirnar.
Þess má geta að ég hef alltaf notað kokteilber í uppskriftina, þar sem fersk kirsuber eru illfáanleg og dýr. Það gefur engu að síður mjög gott brauð.


