Becks

cracking bloke

laugardagur, desember 24, 2005

Jólahugvekja

Hér er ég á næst-síðustu næturvaktinni minni á Skógarbæ. Þetta er komið ágætt...

Jólaglögg læknanema var á miðvikudaginn. Ég var kominn í rokna fíling og hlakkaði mikið til að éta á mig gat á Ruby Tuesday og djamma síðan með þeim, en allt kom fyrir ekki. Ég var algjörlega over þegar ég vaknaði miðvikudagsmorguninn og fann að ég var engan veginn í stakk búinn að fara að djamma. Ég var ekki "veikur" heldur bara over, algjörlega sprunginn á limminu. Kenni ég meðal annars blessuðum næturvöktunum (báðar nætur aðra hvora helgina í vetur), eitthvað það versta sem hægt er að gera heilsunni er að rugla með svefnvenjur...héðan í frá er ég hættur því, a.m.k. þangað til ég verð kandídat :)

Tók létt Þorláksmessurölt um kaffileytið með Jennýju. Mjög næs. Ef þið eruð á röltinu niður í bæ og ætlið í kakó og vöfflur mæli ég eindregið með Tíu dropum á móti Skífunni...við erum að tala um svona massífar vöfflur eins og á Vöffluvagninum.

Pæling: af hverju í ósköpunum selur sælgætisgerðin Freyja ekki draumbita, líkt og hrískubbarnir, bara í dósum og þá er hægt að kaupa "Draum í dós". Mundi það ekki rokseljast???

Já og hugvekjan er þessi: verið góð hvert við annað. Gleymið ekki þeim fleygu orðum Slartibartfast:
"Ég vil frekar vera hamingjusamur en hafa rétt fyrir mér"

laugardagur, desember 17, 2005

Robbins mælti...

"Blockage of the portal vein may be insidious and well tolerated or may be a catastrophic and potentially lethal event; most cases fall somewhere in between."

Jedúdda mía...

þriðjudagur, desember 13, 2005

www.krimar.blogspot.com

Kristín María er komin með blogg...endilega kíkið á það.

laugardagur, desember 10, 2005

Hettusóttartilfellum fjölgar enn

Í nýjasta tölublaði Farsóttafrétta kemur fram að hettusóttartilfellum fjölgar enn.

Farsóttafréttir

Hettusótt getur verið afar hvimleið, ekki síst fyrir stráka en hún veldur m.a. eistnabólgu þar sem eistun geta orðið á stærð við hnefa, og getur leitt til ófrjósemi.
Einnig er algengt að einkenni komi fram í munnvatnskirtlum við eyra (klassískt), brisi, augum og eggjastokkum.

"Þar sem að hettusóttarfaraldurinn virðist vera vaxandi ef eitthvað er og upplýsingar hafa borist um alvarleg einkenni sýkingarinnar hefur sóttvarnarlæknir ákveðið að hvetja alla einstaklinga á Íslandi fædda 1981 til og með 1985 að láta bólusetja sig með MMR bóluefni."

Einstaklingar fæddir 1981 til og með 1985 misstu af umræddri bólusetningu og hafa því ekki mótefni gegn hettusótt (né rauðum hundum og mislingum).

MMR bólusetningu er hægt að fá á næstu heilsugæslustöð, viðkomandi að kostnaðarlausu.

þriðjudagur, desember 06, 2005

Góðan helvítis daginn!!!

Eigum við að ræða tæklinguna hjá Essien á Hamann???

Læknanemar

They work hard; they play hard.