Becks

cracking bloke

miðvikudagur, september 26, 2007

Íslensk drengjanöfn

Dómaldur Dósóþeus

Fabrisíus Hólmfastur

Immanúel Hraunar

Jeremías Kaktus

Kató Lýtingur

Ljósálfur Kaldi

Mekkínó Melkólmur

Parmes Anes

Reading 2-4 Liverpool

Torres tekur Reading í kennslustund

föstudagur, september 14, 2007

Skilurðu?

Ég starfaði m.a. á hjúkrunarheimili í sumar. Hátt hlutfall innflytjenda í umönnun aldraðra á hjúkrunar-og öldrunarheimilum hefur vakið mikla athygli í fjölmiðlum. Starfsfólkið er misjafnlega vel talandi á íslensku, og reyndar aðdáunarvert hvað sumir koma vel fyrir sig orði. En því miður er það frekar undantekningin. T.d. er ekkert óalgengt að einhver í umönnuninni komi til mín á vöktunum og segi:

"Óli, þú tala við Guddu gömlu og spyrja hvað hún vill, ég ekki skilja hana."

Það er eins og það er.

Sömuleiðis þegar ég fer að kaupa í matinn er reynslan ekkert ósvipuð. Ég á heima í Norðurmýrinni og kaupi oft inn í Bónus, Kjörgarði. Þar er starfsfólkið á búðarkössunum nánast eingöngu innflytjendur, fyrir utan nokkra táninga í sumarvinnu. Ef ég gerist svo djarfur að spyrja kassadömuna um e-a vöru eða annað slíkt, er fátt um svör heldur bent á skjáinn á kassanum.

Það sama var upp á teningnum þegar ég var á leiðinni úr sumarbústað í sumar, þá stoppuðum við á matsölustað í Borgarnesi og fengum okkur að borða. Þegar við höfðum sests niður að snæðingi vatt ég mér að afgreiðslustúlku úti í sal og spurði hana um ákveðna vöru. Svarið var einfalt:

"Ég skil tig ekki".

Hún lagði þó á sig að læra það, sem er meira en aðrir.

Þetta eru aðeins fá dæmi af mörgum...

Hvað er að á Íslandi þegar enginn skilur Íslendinginn?

þriðjudagur, september 11, 2007

Smásálin: Launaleynd

Tvíhöfði: 17. þáttur frá 6/5 ´07. Hraðspóla fram á 26. mínútu í þættinum.

þriðjudagur, september 04, 2007

Smásálin: Kleinar

Ef einhver þeirra sem villast á þessa síðu eiga eftir að hlusta á Tvíhöfðaþáttinn, þar sem Kleinar hringir inn í Smásálina, þá skal sá hinn sami drífa í því ekki seinna en strax.

Tvíhöfði: 3. þáttur frá 21/1 ´07. Hraðspóla fram á 8. mínútu í þættinum.