Ekki er langt um liðið frá því ensku úrvalsdeildinni lauk, en engu að síður eru það vonbrigði að verða vitni að aðgerðarleysi Liverpool FC á leikmannamarkaðinum. Ekki er hægt að kenna Rafa Benitez um, þar sem það er á kristaltæru að hann er með á hreinu hvaða leikmenn hann sækist eftir til að styrkja lið sitt.
Hins vegar eru blikur á lofti að hinir nýir eigendur liðsins, Tom Hicks og George Gillett, sem eignuðust meirihluta í félaginu fyrr á árinu, munu ekki veita það fé til leikmannakaupa sem við var búist. Þeim hefur verið hampað sem bjargvættum og öðlingum sem ætluðu að útvega Rafa&co fjármagn til þess að styrkja leikmannahóp Liverpool svo loksins væri hægt að ógna Man. Utd. og Chelsea í baráttunni um enska meistaratitilinn. Þeir lofuðu að í sumar yrði engu til sparað að fá leikmenn í heimsklassa til félagsins. Nú er hins vegar komið nýtt hljóð í kútinn:
"As far back as February, Rafa laid out a program for us," says Gillett. "Each one of our sports businesses has a core concept. You can't just flop around looking at opportunities here and there, go left, go right. It has to be part of an integrated plan. We have one at Liverpool, as we have with the Canadiens, one we understand 100 per cent, believe in and support. The plan involves us spending money, but it will be part of a plan, not just spending like a drunken sailor." -
George GillettEf þetta er það sem koma skal af nýjum eigendum, þá eru þeir vinsamlegast beðnir um að snúa aftur til BNA.
Anfield Road - Rafa told to work with usual budget