Becks

cracking bloke

föstudagur, febrúar 23, 2007

Tvíhöfði

Tvíhöfði snéri aftur fyrir stuttu þjóðinni til mikillar gleði.

Ákvað því að smella inn tenglinum að þáttum Tvíhöfða. Ef skammdegið er farið að taka sinn toll má því heimsækja tvíhöfða sinn og hressa upp á hvunndaginn.

mánudagur, febrúar 19, 2007

Materazzi



Það er á allra vitorði hversu leiðinlegur og óheiðarlegur leikmaður Marco Materazzi er. Flestir muna eftir honum sem manninum sem Zidane skallaði í úrslitaleik HM 2006. Sagan hefur síðan þróast á þann veg að enginn man hverjir urðu heimsmeistarar, heldur einungis að Zidane hafi skallað niður erkiflónið Materazzi.

Þetta myndband ber þess vitni hversu óheiðarlegur knattspyrnumaður hann raunverulega er. Þessi brot eru einungis fengin úr viðureignum AC Milan og Inter Milan (!).

http://youtube.com/watch?v=WJPKM5aJGW8

föstudagur, febrúar 09, 2007

Lýsingarorðaklám



Epísk stórmynd!
- Danni, www.banani.blogspot.is

Stórkostlegar tæknibrellur, ógleymanleg ræma!
- Siggi, www.lordinn.com

Æðislegt melódrama, ég skemmti mér konunglega.
- Baddi, www.stjornuspjall.is

---

Er ekki kominn tími fyrir kaffihúsaspekinga kvikmyndasíðanna að skrúfa rétt niður gífuryrðin í dómum sínum? Það skiptir engu hvaða mynd ratar í kvikmyndahúsin, á allar þeirra er búið að klína a.m.k. þremur stjörnugjöfum þar sem þær hafa fengið fullt hús.

Í mínu tilviki er það orðið regla að forðast myndir sem er búið að raða á stjörnur á kvikmyndasíðum dagblaðanna. Sjaldnast eiga þær það inni.

Spörum fullt hús fyrir myndir sem eiga það skilið.

laugardagur, febrúar 03, 2007

Febrúarbrennslan

1. Nina Simone - Don´t You Pay Them No Mind
2. Joy Division - She´s Lost Control
3. John Frusciante - a Song to Sing When I´m Lonely
4. Beach Boys - Don´t Worry Baby
5. Red Hot Chili Peppers - Desecration Smile
6. The Flaming Lips - Do You Realize?
7. Danielson - Did I Step On Your Trumpet?
8. Depeche Mode - World Full Of Nothing
9. Jeff Buckley - Morning Theft
10. Pink Floyd - Breathe In The Air