Becks

cracking bloke

mánudagur, desember 25, 2006

Gleðileg jól!

sunnudagur, desember 10, 2006

Fullseint í rassinn gripið...

Þá er hafin sú keðjuverkun sem útséð var að yrði í kjölfar hvalveiða Íslendinga. Bandaríkjamenn hóta að sniðganga íslenskar vörur og fokdýr markaðssetning þar vestra til að auka hróður íslenskra vara er sennilega fyrir bý. Í það minnsta horfum við upp á stórskaðaða ímynd íslenskra vara.

Þar hafið þið það.

Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra og guðfaðir þessara illa úthugsuðu hvalveiða drífur sig með næsta flugi til Washington og ætlar að róa liðið. Einhverra hluta vegna grunar mig að það eigi ekki eftir að ganga neitt allt of vel.

Whole Foods er þegar búið að afþakka fund með Einari & co. Sömuleiðis bandaríska hafrannsóknastofnunin.

Ég er persónulega ekki á móti hvalveiðum per se, en það var frá upphafi ljóst hverjum hugsandi manni að veiðarnar ættu eftir að draga dilk á eftir sér. Hér er klárlega verið að fórna meiri hagsmunum fyrir minni.