Becks

cracking bloke

mánudagur, nóvember 27, 2006

Fjölónæmar bakteríur

Fyrir nokkru síðan fjallaði ég um að þörf væri á árvekniátaki um fjölónæmar bakteríur í okkar samfélagi. Kannski að umfjöllun Kompáss sé upphafið að einu slíku?

Kompás - Fjölónæmar bakteríur

laugardagur, nóvember 11, 2006

Borat



Skellti mér á "Borat" með Sacha-Baron Cohen í hlutverki hins litríka Kasakstana Borat. Ég fór á myndina með miklar væntingar, og hún stóð undir þeim. Gríðarlega fyndin mynd.

Fyrir utan að vera frábær grínmynd, þá afhjúpar "Borat" hina snargeðveiku hægrisinnuðu kristnu þjóð suðurríki Bandaríkjanna. Ekki laust við að það hafi farið hrollur um mann þegar hann ræddi við vitleysinginn rétt áður en hann söng þjóðsönginn.