Becks

cracking bloke

þriðjudagur, október 24, 2006

Hver er mesta fíflið í umferðinni?

Má ég kynna nýjasta raunveraleikaþáttinn:

"Hver er mesta fíflið í umferðinni?"

Engin formleg skráning, ekkert þáttökugjald...bara drífa sig út í umferðina og keyra eins og fífl. Eins og alþjóð veit hefur leikurinn staðið yfir um nokkurn tíma en það er ekki of seint að vera með! Margir eru til kallaðir, en aðeins einn getur orðið:

MESTA FÍFLIÐ Í UMFERÐINNI



Að öllu gamni slepptu þá er ekkert eðlilegt hvað fólk keyrir illa, eða öllu heldur kann ekki að keyra á Íslandi í dag.
Tökum dæmi. Umferðaljós eru ekki flókið fyrirbæri. Ef það er grænt ljós þá máttu keyra yfir, ef rautt þá ekki. Ég er hættur að telja alla þá sem fara yfir á svo pípandi rauðu, að það er orðið stórhættulegt.

Og þegar allt kemur til alls þá er enginn hagur af þessari vitleysu. Þú græðir engan tíma, þér líður ekkert betur.