Jólahugvekja
Hér er ég á næst-síðustu næturvaktinni minni á Skógarbæ. Þetta er komið ágætt...
Jólaglögg læknanema var á miðvikudaginn. Ég var kominn í rokna fíling og hlakkaði mikið til að éta á mig gat á Ruby Tuesday og djamma síðan með þeim, en allt kom fyrir ekki. Ég var algjörlega over þegar ég vaknaði miðvikudagsmorguninn og fann að ég var engan veginn í stakk búinn að fara að djamma. Ég var ekki "veikur" heldur bara over, algjörlega sprunginn á limminu. Kenni ég meðal annars blessuðum næturvöktunum (báðar nætur aðra hvora helgina í vetur), eitthvað það versta sem hægt er að gera heilsunni er að rugla með svefnvenjur...héðan í frá er ég hættur því, a.m.k. þangað til ég verð kandídat :)
Tók létt Þorláksmessurölt um kaffileytið með Jennýju. Mjög næs. Ef þið eruð á röltinu niður í bæ og ætlið í kakó og vöfflur mæli ég eindregið með Tíu dropum á móti Skífunni...við erum að tala um svona massífar vöfflur eins og á Vöffluvagninum.
Pæling: af hverju í ósköpunum selur sælgætisgerðin Freyja ekki draumbita, líkt og hrískubbarnir, bara í dósum og þá er hægt að kaupa "Draum í dós". Mundi það ekki rokseljast???
Já og hugvekjan er þessi: verið góð hvert við annað. Gleymið ekki þeim fleygu orðum Slartibartfast:
"Ég vil frekar vera hamingjusamur en hafa rétt fyrir mér"
