Ég er kjötæta, og reyndar langflestir sem ég þekki. Mér finnst sunnudags-lambalærið hrikalega gott, ekki síður svínakótilettur (m/timjan, sítrónu og pestó...mmm) og ekki hata ég nautasteikina.
Sumir kjósa ekki að leggja sér dýr til munns og er það eitthvað sem ég virði fullkomlega. Ég skil þeirra sjónarmið vel og auk þess er hægt að gera frábærar máltíðir án þess að kjöt eða fiskur komi þar við sögu.
Í nýjustu þáttaröð Jamie Oliver ferðast hann um Ítalíu og kynnir sér ítalska matargerð.
Í síðasta þætti heimsótti hann ítalskan sveitabæ, þar sem honum er boðið að snæða kvöldverð. Elda átti lamb og var Jamie sýndur sá heiður að skera lambið á háls.
Nú er allt vitlaust á Bretlandi (víðar) vegna þessa.
Mér skilst að það hafi verið viðvörun í upphafi þáttarins.
Að slátra lambi á þennan hátt er eitthvað sem hefur verið stundað öldum saman og er enn gert þann dag í dag.
Að kjötætur skuli fordæma þennan verknað er ótrúleg hræsni. Hvaðan halda þau að kjötið komi? Kannski að maður ýti á einhvern hnapp í Hagkaupum og þá pompi niður svínabógur í sellófani, framleiddur í þar til gerðri vél?
Er þetta svo skelfilegt?
Kjúklingar í örsmáum búrum, erfðabreyttir svo það vaxi ekki á þeim fiður sem eru að lokum drepnir af maskínu sem gefur þeim rafstuð og klippir af þeim hausinn...ÞAÐ er skelfilegt.