mánudagur, febrúar 28, 2005
Með fuglunum nýt ég þessa einmanalega útsýnis...
Jæja, nú jæja...best að blogga...ekki seinna vænna;)
Var í tudor nú rétt áðan, sem er verkleg kennsla innan samskiptafræðinnar. Við fáum að þjálfa okkur í undirstöðuatriðum í skoðun + æfa hið margfræga samtal læknis og sjúklings.
Þá er að passa sig að:
-byrja opið og ná góðum tengslum við sjúklinginn
-spyrja opinna spurninga
-beita þögnum
-taka saman í lokin
o.fl.
Það er skemmst frá því að segja að leiðbeinendurnir eru mjög ánægðir með þær framfarir sem hafa nást hjá okkur Oddi svo við getum verið sáttir...
The Swan
Hefur einhver séð þessa þætti???
HVAÐ ER AÐ ÞESSU FÓLKI??? Með þessu þáttum hefur orðið lágkúra og sömuleiðis úrkynjun verið skilgreind upp á nýtt! Þetta er bara of sick...
Í hverjum þætti eru fengnar tvær konur, sem í þessum þætti sem ég datt inn í voru þunglyndar húsmæðar á miðjum aldri. Þær eru teknar í gegn á skurðarborðinu; sílíkon í brjóstin, kollagen í varirnar, botox í andlitsvöðvana og strekking í andliti, fitusog og svo til að kóróna barbie-lúkkið er hárið litað ljóst og krullað.
Aftur:
HVAÐ ER AÐ ÞESSU FÓLKI???
Við skulum gera okkur grein fyrir því að þátttakendur hafa engin lýti sem koma í veg fyrir að þau lifi af daglegt líf. Frekar er verið að bæta upp sálarkvilla auk þess sem þau fá sjálfsagt þó nokkrar spesíur í baukinn. Svo mæta þær fyrir framan kameruna, geta varla hreyft varirnar eftir strekkinguna og lýsa því yfir hvað þær séu hamingjusamar með sílíkoninbrjóstin sín og fitusogaða rassinn og að nú loksins séu þær fallegar og þar með heyri allar áhyggjur fortíðinni til...
HJÁLP!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
HLÍFIÐ MÉR.....
þriðjudagur, febrúar 08, 2005
hehehe
www.mbl.is
"Kjósandi stígur út úr kjörklefa í Nærum í Danmörku í dag."
Fyrir fólk með aulahúmor á háu stigi (eins og t.d. mig)
Óskar fjændi
Kíkti á Million Dollar Baby með Freysa á laugardaginn. Hafði ég engar sérstakar væntingar, sem er náttúrulega besta nestið, sérstaklega á svo góðar myndir. Hér tekst Clint gamla ótrúlega vel upp - frábær mynd! Hún er tormeltari en margir mundu halda en vel þess virði...
Af þeim myndum sem eru tilnefndar til bestu myndar í ár á Óskarnum hef ég einnig séð The Aviator. Mæli sömuleiðis með henni - Leonardo DiCaprio hefur aldrei verið betri í annars mjög vandaðri mynd.
Svo í kvöld ætla ég að kíkja með Bönna og Kalla á "Sideways" en allir sem ég þekki sem hafa séð hana halda ekki vatni yfir henni. Best að hreinsa hugann...
