Becks

cracking bloke

laugardagur, janúar 29, 2005

Afhroð Íslendinga í Túnis

Jæja, eins og hvert mannsbarns veit stendur íslenska liðið í ströngu á HM í handbolta í Túnis N-Afríku. Það virðist engu skipta hvort menn fylgjast almennt með handbolta - það horfa allir á þessa leiki og skapast því öflug umræðu sem allir taka þátt í.
Við byrjuðum ágætlega og máttum þakka fyrir jafntefli gegn Tékkum. Því næst voru það Slóvenarnir. Við spiluðum að mörgu leyti mjög vel í þeim leik, vörnin að svínvirka og hreinlega grátlegt að við kláruðum ekki þann leik.
Ég sá því miður ekki Kúveit leikinn en hann var víst ekkert til að hrópa húrra fyrir. Hlaust 9 marka sigur, 31-22, en til samanburðar unnu Rússar þá 38-11(!).
Þá var komið að leiknum sem við urðum að vinna til að gera einhverjar gloríur á þessu móti - gegn Rússunum. Við byrjuðum illa og gerðum ekki annað en að renna á hausinn í frystihúsinu og rússar komast í 5-0. Svo tökum við okkur á (íslenska hugarfarið að drulla sér ekki að gera hlutina fyrr en kúkurinn er kominn upp á bak???) komumst yfir og förum í hálfleik með jafntefli. En í síðari hálfleiknum er það sama sagan - Rússarnir fóru að sigla fram úr án merkjanlegrar baráttu hjá okkar mönnum og niðurstaðan verður 7 marka tap.
Staðreyndin er hins vegar sú að við eigum alveg að geta unnið þessa Rússa og hvaða lið sem er. En til þess þarf liðið að vera vel samstillt, ekki síst í vörninni, en það vantaði algjörlega.
Ólafur Stefánsson hefur verið okkar besti maður í hart nær áratug og haldið okkur uppi á köflum en hér var hann ekki að finna sig. Ekki er hægt að fara að sakast við hann eftir allt það sem hann hefur gert. En í Rússaleiknum sást greinilega að hann var eitthvað niðri fyrir og þá eitthvað meira en lítið dapur því maðurinn var gjörsamlega óþekkjanlegur.
Og af hverju kann Viggó Sigurðsson ekki að taka leikhlé á réttu augnabliki?!?!???
Þegar þú tekur leikhlé þá ertu ekki að snúa leik liðsins á hvolf. Helst ertu að breyta um varnartaktík, mótívera menn eða eitthvað slíkt. Lang öflugustu áhrif leikhlés er að stöðva stórsókn andstæðinganna. Þegar Rússarnir eru að sigla fram úr okkur í gær átti að taka leikhlé ekki seinna en þegar við erum komnir 2-3 mörkum undir en ekki þegar við erum 6 mörkum undir og erum virkilega að ströggla.
Nú erum við í þeirri stöðu að þurfa að treysta á að Kúveit vinni Tékkanna. Það mun aldrei gerast.

þriðjudagur, janúar 18, 2005

Gott djamm...lélegur leikur

Á föstudag var djammað með læknadeildinni. Var haldinn æsispennandi fyrirlestur um kynsjúkdóma og að því loknu hófust herlegheitin. Góð stemmning þar sem m.a. var spilaður suck n´blow með misjöfnum árangri.

Í dag fáum við að skella hjartalínurita á hvert annað...sem ætti að verða fróðlegt.

Svona lítur staðlað, tólf punkta EKG (elektrokardiogram) út.
P - afskautun atríanna (gátta)
QRS - afskautun ventrikla (hvolfa)
T - endurskautun ventrikla

Endurskautun atríanna hverfur inn í QRS komplexinn.

Allar breytingar út frá þessu staðlaða EKG gefa til kynna góðkynja eða illkynja breytinar á dæluvinnu hjartans.
Algengt hjá ungu, heilbrigðu fólki er sinus arrythmia sem stafar einfaldlega af því að hjartslátturinn eykst lítillega við innöndun.

Stay tuned

miðvikudagur, janúar 12, 2005

Brill hér!

Morientes til Liverpool...úje!
Fyrsta verkefni: sökkva rauðu aumingjunum aka mAN uTD.