Bókalestur, tónlist, DVD...
Það er nokkurn veginn það eina sem hefur verið stundað í jólafríinu + óhóflegt nammiát. Er það vel.
Jólapakkarnir slógu í gegn en þar leyndust:
-föt
-geisladiskar (m.a. Smile m/Brian Wilson sem er magnaður)
-bækur
-o.fl. o.fl. o.fl.
Í gær fékk ég í hendurnar myndirnar frá Interrailinu frá því í sumar á diski. Það var ekki leiðinlegt að fletta í gegnum það.
Svo skemmtilega vildi til að við fundum hluti eða staði sem hétu það sama og við:
Mín kemur innan skamms...
Þrátt fyrir hina mögnuðu ferð er enn útþrá í mér sem ég er að melta hvernig ég kem til með að fá útrás fyrir. Það er af nógu að taka...
