Reunion
Bogi - Support bacteria, they're the only culture some people have. says:
sæll
Bogi - Support bacteria, they're the only culture some people have. says:
hitti ég þig í gær?
Óli Hilmar says:
á hvaða stað?
Bogi - Support bacteria, they're the only culture some people have. says:
veit ekki, bara svona að tékka
Bogi - Support bacteria, they're the only culture some people have. says:
ég var nebbla í bullinu
Óli Hilmar says:
ég var á Sólon og Hressó
Bogi - Support bacteria, they're the only culture some people have. says:
ok, ég veit ekkert hvar ég var
Ég var kannski ekki í sama bulli og Bogi í gær en nógu miklu bulli samt...
Í gærkvöldi var húllumhæ með gamla genginu ef svo mætti segja, þ.e. gamla grunnskólabekknum. Og ég verð að segja að miðað við að það séu bara liðin 5 ár síðan hefur margt breyst...margt breyst...
Fyrir utan kippuna sem maður tók með sér var forláta bolla á staðnum og var hún furðugóð. Svo tók ég í vörina. Go figure...
Annars tókst þetta vel upp, mætingin var með fínasta móti og eiga þeir sem sáu skipulagninguna heiður skilinn. Mad propz...
