Becks

cracking bloke

miðvikudagur, september 22, 2004

Er að detta í svefninn

Ég var að koma heim rétt í þessu...var að viðra Tinnu, hundinn okkar sem er af boarder-collie (vona að þetta sé rétt skrifað). Venjulega fer ég með hana í göngutúr út að útsýnisskífu ekki langt frá mér, og fæst þar mikið og gott útsýni.
Svo var líka svo stjörnubjart að ég lagðist í grasið og fylgdist með himinhvelfingunni um stund. M.a. leitaði ég að gervihnöttum og fann 2 stykki. Þetta gerði ég með Kidda bróður mínum þegar ég var lítill og vakti þetta góðar minningar.

Þegar ég kom heim kveikti ég á sjónvarpinu rétt sem snöggvast og fékk Ólympíuleika fatlaðra. Þar sá ég:
- blindan mann keppa í langstökki
- alvarlega hreyfihamlaðan mann keppa í kúluvarpi
og allt í einu sló það mig...hvað maður á að vera þakklátur að hafa það sem maður hefur. Ef ég öðlast jafn ósvikið bros og var á hinum ágætu fötluðu keppendum verð ég fáránlega sáttur :)

góða nótt

laugardagur, september 18, 2004

Hvar er Valli ?



Jæja krakkar hvar er hann Valli núna ???

þriðjudagur, september 14, 2004

www.forvarnir.com

allir að heimsækja forvarnir.com en það er síða sem er haldið uppi af læknanemum.

Forvarnarstarfið hófst fyrir fáeinum árum en þar heimsækja læknanemar menntaskóla landsins og fræða áttavillt ungmennin um hvernig megi forðast kynsjúkdóma og ótímabærar þunganir.
Starfið er brýnt og er strax byrjað að skila sér, t.d. hefur fóstureyðingum fækkað um ca. 20 % síðan í fyrra hjá þessum aldurshópi. Ekki amalegt það...

Liður í forvarnastarfinu er forvarnaferðin/ráðstefnan sem 2. árið fór í um síðustu helgi og var það haldið í Þjórsárveri. Þetta reyndist fáránlega skemmtileg helgi. Kallinn fékk m.a.s. verðlaun fyrir túlkun sína á Sverri Harðar í sketchakeppninni og hlaut kynlífstellingatening að launum.

mbl.is:

„Viðskiptavinur“ matvörubúðar í Síberíu beit eyrað af starfsmanni búðarinnar, eftir að sá síðarnefndi hafði neitað að gefa honum vatnsmelónu, að sögn Ananovu. Ofbeldismaðurinn, sem er frá Úkraínu, varð trítilóður þegar beiðni hans um ókeypis melónu var neitað, stökk yfir búðarborðið og beit eyrað af afgreiðslumanninum.

Þetta er alvörumaður. Hvernig væri að gera þetta næst þegar maður fær ekki frían bjór á Hverfis ?

Myndasíða læknanema er www.meinvorp.tk.
Þar er hægt að sjá myndir eins og þessa:


Ekki veit ég hvað hefur komið yfir Stein á þessu augnabliki...og ég held mig langi ekki að vita það :)

mánudagur, september 13, 2004

Amroth Elensar

Ég heiti Amroth Elensar...á álfamáli.

Allir að fá sér álfanafn

mánudagur, september 06, 2004

að helgi lokinni...

Helgin reyndist hin ágætasta.
Á föstudaginn var busakvöld læknadeildar á Gauk á Stöng sem heppnaðist bara drulluvel. Busarnir komust klakklaust í gegnum kynninguna og stóðu sig með prýði. Hélt djammið áfram á Sólon og var gert gott mót.

Sá einnig myndina Bourne Supremacy. Það er mjög góð mynd.

Í dag rakst ég á þá fyndnustu síðu sem ég hef séð. Gauti á heiðurinn af því að grafa hana upp og má guð vita hvernig hann fór að því.

Best að fara að læra.