Becks

cracking bloke

mánudagur, ágúst 30, 2004

hugleiðingar

jæja nú er skólinn farinn á fullt og verður næsta mánuðinum varið upp á Læknagarðinum...

Fólk á sínar aðferðir til að einbeita sér við lesturinn. Mín aðferð er TÓNLIST. Tónlist og aftur tónlist. Ég læri aldrei betur en þegar ég er vel einbeittur með góða tónlist í eyrunum. Í mínum heimi.
Núna er ég að hlusta á fyrstu Stone Roses plötuna sem er algjör klassík. Skyldueign.
Aðrar plötur sem ég er að hlusta á í augnablikinu:

Nick Drake - Five Leaves Left
The Smiths - Singles
The Cure - Galore

Nú um daginn kom svo út viðhafnarútgáfa af meistaraverki Jeff Buckleys "Grace". Mjög svo eigulegur gripur. Við erum að tala um þrefalda plötu: 1. diskur er gamla Grace, 2. diskurinn inniheldur B-hliðar og lög sem komust ekki á Grace (eins og hið magnaða "Forget Her") og sá 3. er DVD með heimildarmynd um gerð Grace með viðtölum við Buckley og restina af sveitinni sem gefur góða innsýn í hvers konar maður þetta var.

miðvikudagur, ágúst 18, 2004

confessions of Britney

"Photographers trick me into poses that make me look slutty." -Britney, October 2003

"My favorite things to do? Listen to music, dance. Go to church. Hang out with my family." -Britney, June 2003

"I'm really trying to move away from the whole sex thing to focus on the music." -Britney, August 2002

"Why can't they just focus on the music?" -Britney, Sept 2003

"I'm a virgin and I want to wait until I'm married ot have sex." -Britney, Feb 2001

"I write about sex, but I would never use sex to sell records. That's just cheap." -Britney, May 2002


Góðan helvítis daginn Britney !

þriðjudagur, ágúst 17, 2004

Nýtt lúkk !

jamms, uppáhaldsliturinn hefur verið grænn frá því ég man eftir mér :)

mánudagur, ágúst 16, 2004

chillin´ & sippin´

Eins og venjulega hef ég það náðugt hér á Kagsaakollegíinu. Skrapp í Lyngby Storcenter og gerði góð kaup á fatnaði. Keypti mér Skyrtu, jakka og belti á spottprís.
Hef sömuleiðis keypt mér DVD, þ.á.m. snilldarmyndina Oldschool en það er sú fyndnasta mynd sem ég hef séð í langan tíma. Hefði ég viljað að Will Ferrell hefði fengið óskarinn fyrir túlkun sína á Frank "the tank"...."you know it".

Snilldarveðrið er búið í bili og spáin gefur skýjað veður næstu daga. Engu að síður er alveg nógu heitt fyrir Íslending :)

miðvikudagur, ágúst 11, 2004

Á danskri grundu

Yesssörí nú er kallinn í Danmörku að chilla feitt með öl í annarri og .....öl í hinni :). Auk þess að geta gert allt hérna er ég fyrst núna að kynnast leiknum "Grand Theft Auto: Vice City" sem er algjör snilld !

Veðrið hérna er auðvitað ljúft og ekki nóg með það heldur er verið að slá met heima á klakanum. Það kom líka hitabylgja heima þegar ég fór á interrail svo ég ætla að láta veðurstofuna vita næst þegar ég held út fyrir landsteinana. Við það geta þeir bætt: "rigning á stökum stað en annars staðar þurrt" :)

Er að hlusta á Jeff Buckley. Ofmat og cover bitch segja sumir...snillingur segja aðrir. Ekki minni spámaður en Jimmy Page kallar hann besta gítarleikara síðustu 20 ára, fyrir utan guðdómlega rödd hans.

mánudagur, ágúst 02, 2004

Verslunarmannahelgin

Var að koma í kotið eftir 5 tíma akstur frá "Cornfield Waterfront" eða Akureyri eins og maðurinn sagði. Var tjaldað á Hömrum og gert gott mót. Veðrið svona líka fínt og allir sáttir. Það fylgja kostir og gallar því að vera á tjaldstæði og einn af göllunum eru smápíkurnar og hnakkarnir (í ermalausum bol með tribal tattoo öskrandi "viltu vera laminn" eða aðra vitleysu). Þetta tröllreið öllu á tjaldstæðinu hjá sundlauginni og þakka ég guði að hafa ekki verið á því helvítis skítapleisi sem var skýrt "New Selfoss".

Síðasta kveldið komu litlir stelpukjánar sem voru af árgerðinni ´88 og vöktum við áhuga þeirra þó okkur prýddi engin tattoo. Fínustu stelpur sosum og spjallaði ég við tvær þeirra (og var önnur þeirra að fá toppeinkunnir til að mynda).Áður en ég vissi af voru þær að segja mér kynlífssögur og voru báðar að biðja mig um að meta hvort þær væru fórnarlömb nauðgana."Ég bað hann um að hætta, aftur og aftur. Er það ekki nauðgun?".............viðbjóður.

Sturtan bíður.....