Næsta Idol stjarna ???
Ætli það sé ég??? Það munum við fá að kynnast er nær dregur því Becksinn er búinn að skrá sig. Lengi hefur mig dreymt að syngja mig inn í hjörtu landans og bræða svo sem nokkur stúlkuhjörtu fyrir alþjóð. Svo er bara spurning hvaða lag maður á að syngja....Breaking the Girl? Bohemian like you? Times like these? Hver veit....Bubbi beware....
Þættirnir OC hafa notið fádæma vinsælda upp á síðkastið og ber þar hæst tíðinda að þar er víst komin sápan fyrir strákana. Þættirnir eru óneitanlega vel gerðir og sosum ekki að furða að formúlan sé að virka. Ég er þó ekki einn af þeim......
Hefur svartur maður komið fram í þáttunum? Held ekki....ekkert nema kynhreinir aríar sem setja upp örvæntingarsvip í lok hvers atriðis....fussumsvei. Það versta er hins vegar hvað þessi aumi OC skríll getur haft áhyggjur af gjörsamlega neinu. ,,Ónei, kærastan mín var að horfa á annan gaur, best að drepa mig!!!!". Vitleysingar...
Um helgina var skroppið til eyrar þeirrar er kennd er við stokk og tjaldað í blíðviðri. Þetta reyndist hin besta afslöppun. Snæddum við á veitingastaðnum "Við fjöruborðið" og varð úr frábær kvöldstund....geðveikur staður. Þeir sem hafa farið þarna vita hvað ég meina. Karlinn var grand á því og pantaði súkkulaðitertu í deser en fékk hins vegar einn áttunda úr þrefaldri súkkulaðiköku dauðans. Ég hafði á tilfinningunni að það væri verið að gera grín að mér: ,,Reyndu að klára þetta helvítið þitt".
Ógisslega góð engu að síður...
Maður ferðarinnar var Kalli sem gerði sér lítið fyrir og skokkaði um Stokkseyri á nærbuxum einum fata.
Heyrumstumt
