próflok, interrail, vinna o.fl.
Nú eru öll próf búin, þ.m.t. samskipta-og siðfræðin en ég var búinn að fagna próflokum áður en ég tók það próf.
Á þriðjudaginn byrjaði ég að vinna og líkt og síðastliðin tvö sumur verð ég flokkstjóri í bæjarvinnunni. Sérdeils prýðilega vinna og ekki skemmir fyrir að ég er með frábæran hóp. Þarna verð ég til 12. júní. Þá tekur annað við ;)
Mun ég þá stíga upp í flugvél sem flýgur með mig beinustu leið til London og þaðan með annarri vél til Rómar. Þar mun interrail okkar Möggu og Bjargar hefjast. Haldið verður sem leið liggur upp stígvélið og til Slóveníu en hún ku vera best geymda leyndarmálið. Svo förum við þvert yfir Norður-Ítalíu og á rivieruna og þar verðum við sko ekkert að flýta okkur, ónei. Þar munum við hitta fyrir Kára kubb sem er í Antibes í málaskóla.
Því næst höldum við upp France til Parísar og verðum þar til 4. júlí. Þetta verður sko geggjað !!
Í gær var það sumarbústaðarferð með læknanemum að Skarðsá, en þangað fórum við líka í nóvember. Reyndist hin besta skemmtun...menn ferðarinnar verða að teljast Gauti, Valli og Sandra sem voru ekkert að tvínóna við hlutina, vippuðu sér úr heita pottinum og héldu út í ána. Komust þau hálfa leið yfir en snéru þá við eftir sannfæringar bjargvætta.
5. maí skellti ég mér á Kraftwerk tónleika í Kaplakrika. Magnaðir tónleikar, eitthvað sem sést ekki oft. Kraftwerk eru eins miklir brautryðjendur og þeir gerast og geta fáir verið jafn kúl við það að standa og spila á hljómborð :)
Næsta miðvikudag verða öllu rokkaðri tónleikar í Kaplakrika, úje. Pixies eru að koma til Íslands !!! Hversu töff er það...hverjum hefði dottið í hug að comeback tónleikar þeirra í Evrópu, þeir fyrstu í ein tólf ár, yrðu á Íslandi...í Kaplakrika ? (!) Eflaust mun ég svitna meira á Pixies en Kraftwerk en sömuleiðis eru þetta gjörólíkar upplifanir. Pixies eru ekki síðri brautryðjendur en Kraftwerk og verða tónleikarnir að sama skapi ekki síðri upplifun...
Nú er bara að læra alla textana út í gegn (kann reyndar þa flesta) og þið sem eruð á leiðinni á tónleikan getið byrjað á þessum:
Where Is My Mind?
by Pixies
Ooh, stop.
With your feet on the air and your head on the ground,
Try this trick and spin it, (yeah) yeah,
Your head will collapse but there’s nothing in it,
And you’ll ask yourself:
“Where is my mind?” x3
Way out in the water,
See it swimming?
I was swimming in the Caribbean,
Animals were hiding behind the rocks,
Except the little fish,
But they told me east is west, trying to talk to me koi koi
“Where is my mind?” x3
Way out in the water,
See it swimming?
With your feet on the air and your head on the ground,
Try this trick and spin it, yeah,
Your head will collapse but there’s nothing in it,
And you’ll ask yourself:
“Where is my mind?”
Way out in the water,
See it swimming?
