Becks

cracking bloke

fimmtudagur, febrúar 26, 2004

Kallinn.....

...að fara í svefninn. Datt í hug að blogga smá.
Á morgun er ráðstefnan svokallaða í samskiptafræði. Hefst hún á fyrirlestri Kristjáns Erlendssonar og ber heitið "Fagmennska". Eiiiiinmitt :)

En þar endar ekki fjörið. Strax á eftir er haldið upp í rútu sem fer með okkur beint í Pharmanor í vísindaferð. Ætti að vera forvitnilegt auk þess sem þeir Björgólfsfeðgar ættu að eiga fyrir bjór á línuna... :)
Svo verður djammað en reynt að slútta þessu snemma í þetta skiptið. Hversu mikið rugl er að djamma fram á morgun? Þetta bara meikar engan sens. Hlýtur að vera algjört einsdæmi og er auðvitað bein afleiðing af himinháu verði staðanna á vínveitingum. Það týmir enginn (sérstaklega ekki fátækur námsmaður) að detta í það á öli sem er keypt þar...sá yrði ekki lengi að fara á kúpuna. Þess vegna hrúgar fólk víninu í sig í heimapartýi og mætir þeim mun seinna í bæinn. Hvað er til ráða ???





þriðjudagur, febrúar 24, 2004

100 listarnir...

...eru aldeilis að slá í gegn. Hver veit nema að einn slíkur birtist hér fljótlega...

RHCP: frh...




...nú er John Frusciante búinn að segja skilið við hljómsveitina. Red Hot eru í vandræðum þar sem þetta er aðeins mánuði áður en þeir eiga að "headlina" lollapolooza hátíðina miklu. Eftir áheyrnarpróf var fenginn gítarleikarinn Arik Marshall. Hljómsveitin hélt áfram að rokka feitt og var gríðarvinsæl.
Hins vegar voru aðstæður Frusciante mun myrkari. Afvegaleiddur eftir hinar gríðarlegu vinsældir sökkti hann sér í heróínneyslu og sleit á umheiminn.
Eftir að hafa haft nokkra gítarleikara til reynslu féllust eftirstandandi meðlimir hljómsveitarinnar að fá Dave Navarro á gítarinn, sem hafði gert garðinn frægann með hinni ágætu sveit "Jane´s Addiction". Þeir héldu saman í hljóðver og afraksturinn kom út 1995 og var platan skírð "One Hot Minute". Er þar ágætis plata á ferð sem náði þó nokkrum vinsældum en ekkert í líkingu við áðurnefndar vinsældir hljómsveitarinnar. Sömuleiðis varð lagið "Love Rollercoaster" úr myndinni "Beavis & Butthead do America" vinsælt. En eitthvað vantaði.
Dave Navarro sagði loks skilið við hljómsveitina árið 1997.
Á meðan gaf John Frusciante út tvær sólóplötur: "Niandra Lades & Usually Just a T-shirt" árið ´95 og "Smile From the Streets You Hold" árið ´97. Báðir gripirnir innihalda óaðgengilegar, grófar upptökur. En inn á milli má heyra snilli hans skína í gegn...
Neysla Johns hélt áfram að stigvaxa. Flea, bassaleikari hljómsveitarinnar hélt sambandi við hann milli þess sem hann var ekki í hljómsveitinni. Segist hann hafa verið þess fullviss að John mundi deyja að lokum.
Það var loks árið 1997 sem vinir og ættingjar sannfærðu John Frusciante að fara í meðferð. Þegar hér er komið við sögu var útlitið ekki gott og ekki ljóst hvort hann næði sér að fullu. Um þetta leyti voru tennurnar rifnar úr honum af sýkingarhættu. En upprisa hans var vægast sagt ótrúleg og árið 1998 sannfærði Flea John um að ganga til liðs við hljómsveitina á ný.

miðvikudagur, febrúar 18, 2004

Húllumhæ læknanema...

...var nú á föstudag, en einmitt þann sama dag kláruðu 1. árs nemar próf í höfuð og háls + taugalíffærafræði. Fengum prófið síðan í fyrra sem hefur sína kosti og galla. Sumir lærðu prófið utan að og fengu 10. Aðrir slepptu því að fara yfir einmitt þetta próf og gengu þess vegna illa. Anyways, fólki var almennt að ganga vel þ.á.m. mér og skal ég hundur heita falli ég í þessu.

Árshátíð læknanema um kvöldið. Fyrirpartý hjá Martin þar sem ónefndur 1. árs læknanemi skaut úr sér augað með bjórtappa. Geri aðrir betur...:)
Þaðan var haldið í Skíðaskálann í Hveradölum. Borðhald + skemmtiatriði og loks ball þar sem hljómsveitin Atómstöðin spilaði fyrir dansi. Ekki besta árshátíð sem ég hef farið á...hópurinn tvístraðist svo úr urðu "farrými", t.d. voru skemmtiatriðin á 1. farrými...ekki gott :(

Það er ótrúlega ljúft að vera búinn með þennan kúrs... I LOVE IT :)

laugardagur, febrúar 14, 2004

Red Hot Chili Peppers...

...er uppáhalds hljómsveitin hans Óla Hilmars. Svo mikið vita flestir sem þekkja eitthvað til mín. Ef ég er einn heima veit ég ekkert skemmtilegra en að hækka "by the way" í botn og spila lúftgítarinn af stakri snilld !

Velgengni Red Hot er einum manni að þakka og það er John Frusciante. Hljómsveitina skipar mjög færir hljómfæraleikarar (Flea er besti bassaleikari í heimi og Chad Smith er einn besti fönk-rokk trommuleikari sem finnst) og ágætis söngvari (Anthony Kiedis) sem semur fínustu melódíur. En það þarf eitthvað meira til að skapa frábæra tónlist....það þarf séní og það er sko John svo sannarlega.

John Frusciante fæddist á því herrans ári 1970 í New York. Hann byrjaði snemma að spila á gítar og þótti efnilegur. Á unglingsárum flutti hann til Los Angeles ásamt móður sinni. Segist hann sjálfur hafa eytt unglingsárum sínum í að "fróa sér og spila á gítar". Hann sannfærði foreldra sína um að hann stundaði fullt nám með því að sýna pappíra sem hann falsaði. Í raun gerði hann fátt annað en að spila á gítar og að venju æfði hann sig 15 klukkustundir á dag. Fljótlega varð "Red Hot Chili Peppers" uppáhalds hljómsveitin hans og sótti hann hverja einustu tónleika sveitarinnar í borginni. Árið 1987 gáfu Red Hot út plötuna "the uplift mofo party plan" sem skaut þeim á stjörnuhimininn og þeir urðu mjög vinsæl "underground" sveit í borg englanna.
Á einum tónleikum hljómsveitarinnar tókst John að komast baksviðs og ræða við goðin sín. M.a. spurði gítarleikari hljómsveitarinnar, Hillel Slovak, hann hvort hann mundi halda jafn mikið upp á þá ef þeir væru vinsælari. Hann sagði að það kæmi ekki til greina, það frábæra við sveitina væri hvað hún væri mikið "underground" og fönkí.
Árið 1988 á sér stað mikill harmleikur þar sem Hillel Slovak gítarleikari sveitarinnar deyr af of stórum skammti heróíns en neysla hans og Anthony Kiedis hafði aukist til muna við Evróputúr sveitarinnar í kjölfar "the uplift mofo party plan". Fannst hann dáinn í íbúð sinni. Í kjölfarið hætti trommuleikari sveitarinnar og Anthony og Flea stóðu eftir einir.
Þeir ákváðu að halda starfi hljómsveitarinnar áfram. Chad Smith var fenginn á trommurnar og gítarundrabarnið John Frusciante var fenginn á gítarinn og gekk hann þar með í uppáhalds hljómsveit sína...aðeins 18 ára gamall !!!

Í kjölafarið kom platan "mothers milk" árið 1989 sem varð gríðarlega vinsæl og innihélt lög eins og "higher ground" og "knock me down". Leiðin var greið og allt lék í lyndi hjá hljómsveitinni.

Árið 1991 gaf hljómsveitin frá sér svo meistaraverkið "blood sugar sex magic". Urðu Chili Peppers nú heitasta númerið í bransanum og ekki varð séð fyrir endann á vinsældunum. Var lagst í stóran túr um heiminn til að seðja ótal aðdáendur hljómsveitarinnar sem hafði heiminn að fótum sér.

En það reyndist meðlimum hljómsveitarinnar erfitt að halda haus og ekki síst hinum kornunga John Fruscinte en hann og söngvari hljómsveitarinnar töluðust ekki við lengur. Svo gerðist hið óvænta....rétt fyrir tónleika á einum af stærstu tónleikastöðum Japans tilkynnir John Frusciante hljómsveitinni að hann sé hættur. Hljómsveitin sannfærir hann um að spila á umræddum tónleikum en daginn eftir var hann í flugvél á leiðinni til Los Angeles....

to be continued.. :)